Vikan


Vikan - 08.08.2000, Side 63

Vikan - 08.08.2000, Side 63
Spá Vikunnar ast vel. Hrúturinn 21. mars - 20. apríl Þú þarft að taka ákvörðun í þessari viku en ert varla tilbúin(n) til þess. Leitaðu aðstoðar hjá þér reyndara fólki og þá mun þér farn- Nautíð 21. apríl - 21. maí Þér býðst eitthvað sjaldgæft þessa viku og þú ættir að íhuga vel að taka því. Skapið verður gott og þér mun verða verulega skemmt einhvern tíma seint í þessari viku. Tuíburinn 22. maí - 21. júní Letin er aftur að taka völdin. Gættu þín! Þú hefur of mikið að gera núna og vilt fresta því sem þér líkar ekki en það er ekki rétta leiðin. Taktu vítamín, hresstu þig við og axlaðu byrðarnar! Krabbinn 22. júní - 23. júlí Þú ert mjög jákvæð(ur) og bjartsýn(n) núna og lætur ekki smámuni raska ró þinni. Bjóddu heim gestum og þiggðu heimboð sem þér berast. Ljónið 24. júlí - 23. ágúst Einhver sem þú þekkir vel er að flytja eða yfirgefa þig á einhvern hátt. Þú gætir fundið til einmanaleika, en þú veist þó að þetta er öllum fyrir bestu og nærð þér fljótt. Meyjan 24. ágúst - 23. september Hvert furðulega atvikið rekur annað þessa dagana og þú átt oft eftir að verða hissa í þessum mánuði. Hikaðu ekki við að nota öll tækifæri til að hagnast í þessari viku. t mc. 46 Vogin 24. september - 23. október Þú ert aðeins að jafna þig eftir eitthvert atvik í fortíðinni og ættir að einbeita þér að því. Haltu þig nálægt vatni þessa vikuna, vatn kyrrir anda þinn og gefur þér orku. Sporðdrekinn 24. október - 22. nóvember Það er mikið flakk á þér um þessar mundir og þér finnst stundum eins og það taki því varla að setja bíllyklana í vasann! Láttu það ekki draga þig niður, það mun margt skemmtilegt gerast á ferðum þínum. Bogmaðurinn 23. nóvember - 21. desember Þú gætir þurft að beita valdi í þessari viku - andlegu eða líkamlegu. Fólk í kringum þig gengur hart að þér og þú þarft að verja þig og þína nánustu. Steingeitin 22. desember - 20. janúar Þér finnst þú vera á hraðri siglingu upp á við núna og það er alveg rétt hjá þér. Þú ættir samt að reyna að skilgreina betur markmið þín áður en þú gefur allt í botn. Annars gæt- ir þú eytt orku til einskis. Vatnsberinn 21. janúar - 19. febrúar Heilsan er eitthvað að stríða þér og þú ert ekki eins úthaldsgóð(ur) og venjulega. Láttu skoða þig og farðu síðan að ráðum þeirra sem vilja þér vel. Gættu líka að mataræðinu. Fiskarnir 20. febrúar - 20. mars Það situr einhver púki á öxlinni á þér núna og reynir að spilla milli þín og einhvers sem er þér nákominn. Stundum þarf að hvíla vin- skap til að skerpa á honum. Amtsbókasafnið á Akureyri llllllllllllllllllllll 03 591 287

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.