Vikan - 17.10.2000, Side 22
en sá böggull fylgdi sem var
gríðarleg yfirvinna; slíkt getur
auðvitað ekki gengið til lengd-
ar. En það er hins vegar alveg
eðlilegt, þegar fólk er að læra,
að það sé tilbúið til að leggja á
sig mikla yfirvinnu.
Blaðamaður; Mælið þið með
þessu námi fyrir ungt fólk?
Hildigunnur: Ég geri það hik-
lausten bendiáað þetta erekki
fyrir hvern sem er.
Þorsteinn: Já, já, alveg hik-
laust. Það er hins vegar svo að
fólk finnur það mjög fljótt hvort
þetta eigi við það, en þó eru
alltaf nokkrir sem átta sig ekki
alveg og halda þess vegna
áfram og verða einfaldlega
vondir þjónar. Þaðer nú yfirleitt
pikkað í öxlina á slíku fólki og
því bent á að kannski henti
starfið því ekki nægilega vel.
Hildigunnur: Ég sé það strax,
til að mynda þegar ég fer út að
borða, hvort viðkomandi þjónn
er faglærður, ófaglærður eða
nemi.
Þorsteinn: Fagmenntun sést
fljótt í fasi fólks; það er spurn-
ing um visst öryggi og í raun og
veru skiptir ekki máli hvaða
geira maður talar um, ef viðkom-
andi hefur þekkingu á því sem
hann er að gera þá kemur sjálfs-
traustið í kjölfarið. Starfið sem
éger í núna er að töluverðu leyti
gjörólíkt þjónsstarfinu, enda hef
ég orðið að leggja nótt við nýt-
an dag við að læra um alla þá
hluti sem tengjast starfinu, enda
nær maður engum árangri án
góðrar þekkingar.
Hildigunnur: Auðvitað líður
engum vel í starfi nema hann
búi yfir nægri þekkingu. Eng-
inn kærir sig um að láta kúnn-
ann rekasigágat varðandi hluti
sem maður á að hafa á hreinu.
Þorsteinn: Ég tel að það sé
alveg óhætt að mæla með
þjónsstarfinu, sérstaklega fyrir
egóista því að til þess að vera
góður í starfinu þarf viðkomandi
í raun og veru að vera talsverð-
ur egóisti.
Hildigunnur: Þjónsmenntun er
góð menntun og langi þjóninn
til dæmisaðfaratil Norðurland-
anna eða víðar þá er alveg til-
valið að segja frá því að íslensk-
ir þjónar hafa verið, í flestum til-
vikum, í miklum metum þar
sem þeir hafa komið til starfa í
útlöndum.
Þorsteinn: Ég hef ferðast ansi
víða erlendis og farið á alls kyns
veitingastaði, dýra sem ódýra og
í raun allt þar á milli, og mér
hefur sýnst að þjónustan út í
heimi sé ekkert betri en hér á
landi, ef einhverju munar þá er
hún betri hér og þá er ég jafn-
vel að tala um ófaglært fólk hér
heima.
Blaðamaður: Er þjónsstarfið
góður grundvöllur, jafnvel
stökkpallur fyrir önnur og betri
störf?
Þorsteinn: Alveg tvímælalaust
og sérstaklega ef þú ferð í starf
þarsem mikil pressaeroghlut-
irnir þurfa að gerast hratt þá er
þetta mjög góður grundvöllur.
Hildigunnur: Þau eru mörgfyr-
irtækin sem sækjast eftir fólki
með góða þjónustulund og auð-
vitað er þetta góður grunnur fyr-
ir þá sem vilja fara í sölu-
mennsku svo eitthvað sé nefnt,
enda eru gríðarlega margir þjón-
ar sem hafa gerst sölumenn og
má segja að það sé oft fyrsti kost-
urinn hjá flestum þeim þjónum
sem hætta í bransanum.
Þorsteinn: Ég get nefnt sem
dæmi að áður en ég fór í at-
vinnuviðtalið hjá BT þá var ég
kominn með annan fótinn inn
bara vegna þess að ég hafði ver-
ið þjónn; atvinnurekendur vita,
í flestum tilvikum, að þjónar
þola pressu vel og það er ekki
lítill kostur í mínu starfi.
Blaðamaður: Hvers vegna
hættuð þið að starfa sem þjón-
ar og er mikið brottfalI úrþjóna-
stéttinni?
Hildigunnur: Það er óhætt að
segja að það sé mikið brottfall
úr stéttinni og gjarnan er það
svo að fólk færir sig af stórum
stöðum yfir á þá minni og það-
an út úr geiranum; vert er að
benda á að það er sérstaklega
mikið brottfall hjá konum, en
það tengist oft barneignum eins
og gefur að skilja. Hvað mig
varðar þá komu til nokkrar
ástæður: Ég er mjög slæm í baki
eftir þetta starf því að það er
mikið álag á fætur og bak að
vinna oft fjórtán tíma á dag á
marmara og það segir sig sjálft
að ekki er það mjög hollt. Eg
var líka óánægð í mínu starfi því
að mér fannst einfaldlega ekki
borin nógu mikil virðing fyrir
mér og mínum störfum og það
var svona ákveðinn ágreiningur
í gangi, og það var reyndar orð-
ið þannig að öll tilhlökkun
vegna vinnunnar var horfin.
Einnigspilaði inn í aðégátti lít-
ið barn sem ég sá ekki langtím-
um saman; telpan mín var sof-
andi þegar ég fór í vinnuna og
sofnuð þegar ég kom heim svo
ég missti af miklu í þroskaferli
hennar sem er alveg hræðilegt.
Þá hefur mér fundist þjónafé-
lagið ekki standa sig nándar
nærri nógu vel í kjara- og hags-
munabaráttunni; það er bara
alls ekki nógu sterkt félag.
Þorsteinn: Það hafa nú marg-
ir talað um það í gegnum árin
hvað þjónafélagið sé aumt, en
hvað á félagið að gera þegar
langf lestir félagsmenn eru alveg
óvirkir; það mæta kannski sex
eðasjömannsáfund. Þaðþýð-
ir lítið að væla yfir því þegar
virkni og áhugi félagsmanna er
svona lítill og án samstöðu
þeirra getur félagið lítið gert og
í raun ekkert upp á það að
klaga. Hvað mig varðar var það
fyrst og fremst þreyta og leiði
sem var að færast æ meira yfir
mig og það var ekki lengur til
staðar þessi tilhlökkun að takast
á við starfið; ég var svona hálf-
drollandi við þetta og þá var
kominn tími til að snúa sér að
öðru.
Blaðamaður: Hvað viljið þið
segja um núverandi störf ykkar
samanborið við það þegar þið
störfuðuð sem þjónar?
Þorsteinn: Ég er svo sem ekk-
ert í mjög ólíku starf i og áður því
að ég er nánast allan daginn að
þjónusta fólk og selja því varn-
ing þótt umhverfið sé allt ann-
að og varningurinn gjörólíkur.
Við höfum nú reyndar ekki kom-
ið inn á það í þessu viðtali að
þjónsstarfið er sölustarf út í
gegn. Þjónar benda fólki á það
sem er gott, þeir mæla með
vissum vínum með matnum og
þeir reyna auðvitað að selja fólki
eins mikinn varning og þeir
geta; út á það gengur þetta.
Hildigunnur: Ég get nokkurn
veginn sagt það sama því að í
raun og veru er ég að gera það
sama; helsti munurinn er
kannski sá að núna er kúnninn
kannski inni í fimm mínútur í
staðinn fyrir fjóra eða fimm
tíma. Það er reyndar meiri
tölvuvinna hjá mér en áður og
starfið er fjölbreyttara og press-
an er ekki eins gríðarleg og ég
ræð mér meira sjálf.
Þorsteinn: Ég get hins vegar
nefnt það að gamni mínu, svona
að lokum, að það kemur stund-
um yfir mann löngun til að fara
að þjóna aftur; þetta virðist vera
hálfgerð baktería eða sjúkdóm-
ur; ég hef rætt þetta við marga
fyrrum kollega mína og þeir eru
samasinnis; nei, þú hættirekki
í þessum bransa bara einn, tveir
og þrír!
22
Vikan