Vikan - 17.10.2000, Blaðsíða 58
Siómaðurinn lét
vtta af Iðti sfnu
Ég bjó alla mína
æsku og fram á ung-
lingsár í litlu þorpi við
sjóinn. Lífið snerist
um fisk hjá flestum og
nánast allar konurnar
unnu í frystihúsinu en
karlarnir voru sjó-
menn. Ég fór
snemma að vinna fyr-
ir mér sem barnapía,
enda þótti það sjálf-
sagt að krakkar
reyndu að vinna sér
inn einhverja vasa-
peninga. í næsta húsi
við foreldra mína
bjuggu ung hjón sem
áttu tvö lítil börn.
Maðurinn var sjómað-
ur og sjaldan heima
en unga konan leitaði
mikið yfir til mömmu
ef hún þurfti einhverr-
ar aðstoðar við. Okk-
ur varð fljótt vel til
vina og ég passaði
fyrir hana börnin
meðan hún vann hálf-
an daginn í frystihús-
inu. Stúlkuna skulum
við kalla Rósu en
manninn Bjarna. Hún
var aðkomustúlka í
þorpinu okkar en
hann heimamaður.
Hún var mjög róleg og
blíðlynd stúlka og
smátt og smátt fór
mér að þykja það
vænt um hana að segja má að
ég hafi litið frekar á hana sem
stóra systur en nágrannakonu.
Rósa fór sjaldan út á kvöldin
og ég sat oft hjá henni og horfði
á sjónvarpið eða spjallaði við
hana. Mamma var alltaf að
reyna að draga hana með sér í
kvenfélagið en Rósa var feimin
og vildi ekki taka þátt í félags-
störfum. Þegar þau Rósa og
Bjarni höfðu búið í fjögur ár I
þorpinu hafði mamma loks er-
indi sem erfiði. Rósafóraðtaka
þátt í störfum kvenfélagsins og
hafði gaman af. Fyrir hver ein-
ustu jól komu konurnar saman
og föndruðu eða unnu handa-
vinnu sem síðan var seld á jóla-
basar kvenfélagsins. Ágóðanum
var varið til góðgerðamála í
þorpinu okkar og allir sem vett-
lingi gátu valdið komu á jóla-
basarinn.
Eftir að Rósa fór að vinna með
kvenfélaginu passaði ég oftar
fyrir hana á kvöldin. Á aðvent-
unni tók hún að sjálfsögðu þátt
í undirbúningi jólabasarsins
enda var Rósa mjög handlagin
og listfeng. Hinar konurnar voru
yfir sig hrifnar af öllu sem hún
gerði og hrósuðu henni mikið.
Þetta varð til þess að ýta undir
sjálfstraust Rósu og hún fór að
verða opnari og líflegri.
Kvöldið sem ég ætla að segja
frá var Rósa óvenjuglöð þegar
hún og mamma gengu af stað
upp í safnaðarheimili. Hún lék
á alls oddi, sagði brandara og
hló hæst allra að þeim sjálf. Ég
ætlaði að passa eins og venju-
lega þegar Rósa fór eitthvað,
og eins og oftast var besta vin-
kona mín, Dfsa með mér. Við
kvöddum mömmu og Rósu í
dyrunum heima hjá henni og
gengum inn í litlu, hlýlegu stof-
una hennar. Börnin sváfu í
svefnherberginu inn af stofunni
og við vinkonurnar komum okk-
Litli drengur-
inn sat uppi í
hjjónarúminu
og horfði á
mig.
ur vel fyrir í sófanum. Við vor-
um með myndband sem við ætl-
uðum að horfa á og fulla skál
af poppkorni. Myndin byrjaði og
við urðum brátt niðursokknar í
hana.
Kaldur gustur fer um her-
bergið
Þetta var rómantísk gaman-
mynd og þegar henni lauk vor-
um við léttar í skapi og kátar.
Umræðurnar snerust allar um
rómantík og hvernig við ætluð-
um að þekkja tilvonandi eigin-
mann þegar við mættum hon-
um í fyrsta sinn. Að sjálfsögðu
gerðum við ráð fyrir því að við
yrðum líkt og lostnar eldingu
og enginn efi myndi nokkru
sinni læðast að okkur ef við bara
fyndum rétta manninn. Við
flissuðum ogspunnum upp lýs-
ingar á draumaprinsinum hvor
fyrir aðra. Þá heyrðum við allt í
einu gengið um útidyrnar.
Við vorum alveg hissa á
hversu snemma Rósa var á ferð-
inni og litum hvor á aðra.
Skyndilega fundum við að kald-
ur gustur fór í gegnum stofuna.
Við heyrðum báðar marr í þrös-
kuldi svefnherbergisins og hálf-
lokaðar dyrnar opnuðist upp á
gátt. Eitt andartak vorum við
báðar eins og lamaðar. Ég fann
ekki fyrir skelfingu en gat af ein-
hverjum ástæðum ekki hreyft
mig. Eftir skamma stund sigr-
aði ábyrgðartilfinningin og ég
stökk á fætur og gekk inn til
barnanna. Litla stúlkan svaf ró-
leg í barnarúminu en litli dreng-
urinn, sem var eldri, sat uppi í
hjónarúminu og horfði á mig.
Hann var alveg rólegur en þeg-
ar hann sá migteygði hann fram
hendurnar og bað mig að taka
sig. Ég fór með hann fram og
þegar við Dísa horfðumst í augu
þá greip óttinn okkur.
Við reyndum að láta ekki á
neinu bera fyrir framan barnið
og ég flýtti mér að fara með
hann á baðherbergið og hjálpa
honum þar. Ég gaf honum síð-
an svolítinn djús i glas og lagði
hann því næst í rúmið aftur. Ég
sat hjá honum og strauk yfir hár
hans þangaðtil hann sofnaði og
síðan flýtti ég mérfram til Dísu.
„Hvað var þetta?" spurði hún
um leið og ég kom fram og ég
náði varla að svara að ég vissi
það ekki þegar gengið var um
útidyrnar á ný og í þetta skipti
kom Rósa hlaupandi inn.
Gáði að börnunum
Hún var náhvít í framan og
æddi beint inn í svefnherbergi.
Þegar hún hafði fullvissað sig
um að allt væri í lagi með börn-
in kom hún fram afturog stundi
af feginleika. Hún sagðist hafa
setið við vinnu sína með hin-
um konunum þegar hún hefði
skyndilega fundið ákaflega
sterkt fyrir þeirri tilfinningu að
eitthvað væri að. Hugboð þetta
58
Vikan