Vikan - 17.10.2000, Qupperneq 60
Texti: Guðríður Haraldsdóttir
Snyrtistofan Gyðjan
Húðslípun,
frábær
nýjuna
fra Italiu
Snyrtistofan Gyðjan
hefur tekið í notkun afar
öflugt og fullkomið tæki
til húðslípunar. Það
heitir Ultra Peel og
kemur frá fyrirtækinu
Pepita á Ítalíu. Þetta er
ný tækni í örslípun húð-
arinnar sem fjarlægir
ysta húðlagið og örvar
þannig neðri húðlögin til
að mynda nýjar frumur.
Alltaf myndast ný, fersk
og heilbrigð húð.
Undraverður árangur á
stuttum tfma
Að sögn Jónínu Kristgeirs-
dóttur, snyrtifræðings og eig-
anda snyrtistofunnar Gyðjunn-
ar, er þetta öflugasta tæki sem
snyrtifræðingar mega vinna
með. „Við erum afar ánægðar
með árangurinn sem þetta tæki
hefur gefið," segir hún. „Þegar
konur koma til okkar í andlits-
bað mælum við eindregið með
því að þær noti þetta einnig til
að betri árangur náist. Snyrti-
vörurnar, sem við notum, ná þá
mun dýpra ofan f húðina og
virka þessvegna miklu beturen
ella. Nýjasta Ultra Peel tækið,
einsogviðerum með, komfyrst
á markaðinn fyrir þremur árum
en hefur verið í stöðugri þróun
í mörg ár. Bandaríkjamenn tóku
því opnum örmum, sérstaklega
vegna þess hve allt hreinlæti
er mikið í sambandi við það og
sótthreinsun fullkomin en allar
reglur í Bandaríkjunum í sam-
bandi við hreinlæti eru afar
strangar," segir Jónína. „Til að
sem bestur árangur náist þarf
að koma í 10 til 14 skipti en
auðvitað fer það eftir því hvern-
ig húðin er. Sumum nægir að
koma einu sinni. Þetta tæki
virkar vel á brúna bletti, sem
geta myndast á andliti eða á
handarbökum, á fíngerðar
hrukkur, ör eftir bólur, óhreina
húð og húðslit. Húðsliti nær
maður kannski aldrei alveg en
með þessu tæki er hægt að
minnka það mikið,“ segir hún.
„Svona meðferð, eingöngu fyr-
ir andlit, kostar 4.300 krónur í
eitt skipti en ef teknir eru tíu
tímar veitum við 15% afslátt.
Ef augu, háls og bringa fá
einnig meðferð kostar eitt skipti
5.600 krónur. Fimm tímar í
þannig meðferð eru með 15%
afslætti og þá er andlitsbað
innifalið í verðinu í fimmta
skiptið.
„Þessi meðferð er bæði sárs-
aukalaus og skaðlaus," segir
Jónína. „Tækið er þannig stillt
að það vinnur aðeins á ysta lagi
húðarinnar og er því fullkom-
lega öruggt og enginn skaði
verður á húðinni," bætir hún
við. „Nú á dögum skiptir útlit
miklu máli og fólk vill auðvitað
I íta e i ns ve I út og það getu r. Það
hefur kannski engan tíma eða
hefur ekki efni á að fara í fegr-
unaraðgerð sem tekur hálfan
mánuð að jafna sig eftir en það
getur komið til okkar og látið
slípa húð sína í hádeginu og
mætt í vinnuna strax á eftir.
Allra viðkvæmasta húðgerð get-
ur roðnað örlítið en jafnar sig á
örskömmum tíma,“ segir hún.
„Við setjum alltaf maska á húð-
ina eftir hverja meðferð til að
róa hana og næra. Meðferðin
tekur í mesta lagi klukkutíma en
ef andlitsbaðereinnigtekið má
alveg reikna með einum og hálf-
um tíma.
Ultra Peel tækin eru afar vin-
sæl um þessar mundir og eru
komin inn á ýmsar húðfegrun-
arstofur en reyndar hafa aðeins
snyrtifræðingar sérmenntun í að
húðgreina fólk,“ segir Jónína.
„Ég mæli eindregið með þess-
ari meðferð og hef séð undra-
verðan árangur á stuttum tíma
hjá fólki sem hefur notað sér
þessa þjónustu okkar. Við fáum
aðallega konurtil okkar á snyrti-
stofuna en meðferðin er að
sjálfsögðu einnig ætluð körl-
um,“ segir hún að lokum.
Snyrtistofan Gyðjan er til
húsa að Skipholti 70 í Reykja-
vík og tímapantanir eru í síma
553-5044.
60
Vikan