Vikan


Vikan - 05.12.2000, Qupperneq 18

Vikan - 05.12.2000, Qupperneq 18
Texti: Þórunn S t e f á n s d ó 11 i r Samskipti kynjanna Öll erum við einn af níu mögulegum persónuleikum, samkvæmt talnafræði sem hefur verið við lýði í margar aldir. Kenningin sem liggur að baki talnaspekinni er sú að með því að staðsetja okk- ur í „rétt núrner" getum við öðlast betri skilning á okkur sjálfum og þeim sem við ferðumst með í gegnum lífið. Ertu ás sem er haldinn fullkomnunaráráttu, gjafmildur tvistur, bjartsýn sjöa ....? Ertu haldin(n) fullkomnunaráráttu? Ég þoli ekki hroðvirkni og vil hafa hlutina á hreinu. Ég kynni mér allar staðreyndir áður en ég tek ákvörðun. Mér líður illa ef mér gefst ekki tími til þess að gera hlutina almennilega. Ég þoli ekki að fólk komist að því þegar ég er reið(ur) og í uppnámi. Ég verð þreytt(ur) og pirruð/pirraður ef hlutirnir ganga ekki nógu vel. Ég segi oft: „Förum yfir þetta einu sinni enn.“ Ég virðist oftar hafa áhyggjur en annað fólk. Ég vil vera sanngjörn/sanngjarn og þoli ekki þegar ósanngirni verður á vegi mínum. Ég reyni alltaf að gera betur. Ég er hrædd(ur) um að fólki hætti að þykja vænt um mig ef ég geri ekki hlutina eins vel og mögulegt er. Fullkomnunarsinninn Ásar eru góðir vinir vegna þess að sann- girni er þeim í blóð borin. Þeir koma eins fram við alla og sjá auðveldlega í gegnum alla sýndarmennsku. Þeir líta hins vegar á fullkomnun- aráráttu sína sem dyggð og eiga það til að verða þunglyndir og geðvondir ef þeim tekst ekki að gera allt á fullkominn hátt. Ásarnir verða að læra að sætta sig 1 við veröldina eins og hún er og tala út um hlutina í stað þessað byrgja reiðina inni. Ef þeim tekst það verða þeir hamingjusam- ari og sáttari við sjálfa sig. Þú getur hjálpað ásunum með því að benda þeim á jákvæðu hliðarnar. Mundu að þeir gagnrýna sjálfa sig stöðugt. Stríddu þeim svolítið og reyndu að fá þá til þess að hlæja að sjálfum sér. Komdu þeim í skilning um að við hin metum þá mikils, jafnvel þótt þeir séu ekki fullkomnir. 18 Vikan Finnst hér betra að gefa en DiggjaP Ég þarfnast þess að finna að einhver þarfnist mín. Margt fólk leggur allt sitt traust sitt á mig. Fólk á auðvelt með að treysta mér. Stundum laumast sú hugsun að mér að fólk notfæri sér góðmennsku mína. Ég reiðist ef ég fæ það á tilfinninguna að fólk taki góðmennsku mína sem gefna. Ég væri frábær „Kæri póstur". Þegar ég hitti fólk í fyrsta sinn spyr ég gjarnan hvort ég geti eitthvað aðstoðað það. Ég hef gaman af því þegar vinir mínir koma óvænt í heimsókn. Mér líður illa ef ég verð vör/var við að einhver sé skilinn útundan. Ég verð kvíðin(n) og kemst í uppnám ef mér finnst mér vera ógnað. Gefandinn Tvistarnir eru góðir og hjartah lýir og njóta trausts allra þeirra sem kynnast þeim. Þeir leggja metnað sinn í að hjálpa öðrum og fá mikið út úr því að finna að fólk þarfnist þeirra. Þeir notagóðsemina og hjálpsemina til þess að kaupa sér ást. Þeim hættir til að móðgast ef þeir finna að fólk kann ekki að meta viðleitni þeirra og geta orðið sárir ef fólk sér í gegnum hjálpsemina og neitar að láta ráðskast með sig. Tvistar eru oft ófærir um að þiggja aðstoð annarra og það gerir vinum þeirra erfitt fyrir að umgangast þá á jafningja- grundvelli. Tvistarnir verða að læra að huga að eigin þörfum og skilja að fólki getur þótt vænt um þá vegna eigin ágætis, að þeir séu ekki metnir eftir því hversu mikið þeir geri fyr- ir aðra. Þú getur hjálpað tvistunum með því að gera þeim Ijóst að vinátta þrífst ekki ef hún er öll á annan veginn og að þeir þurfi ekki alltaf að vera að sanna ágæti sitt. Ertu yfirborðskenndur? Mér líður best þegar ég hef mikið að gera. Mér hættir til þess að loka augunum fyrir erfiðleikum í mannlegum samskiptum. Mér þykir gott að vinna í hópi en krefst þess að það sé hlustað á mig. Það kemur fólki stöðugt á óvart hvað ég er afkastamikil(l). Mér líður illa ef mér mistekst það sem ég tek mér fyrir hendur. Ég þoli ekki taugaveiklað og óákveðið fólk. Það skiptir mig miklu máli að fólk telji mig njóta velgengni og hamingju. Útlit mitt skiptir mig miklu máli. Ég kann þá kúnst að láta fólki líka við mig og dást að mér. Ég á erfitt með að skilja fólk sem þarfnast þess að vera stundum eitt með sjálfu sér. Leikarinn Þristarnir eru svo orkumiklir og skemmti- legir að það er erfitt að standast þá. Þeir eru aðlaðandi og öllum líð- ur vel í návist þeirra. Þeirgeta hins vegar verið stjórnsamir og ' láta engan komast upp með það að standa í vegi þeirra að : settu marki. Þeir meta eigið ágæti eftir velgengni og Ijúka yfirleitt ekki því sem er efst á listanumáður en þeir byrja á einhverju öðru. Þeir telja að með því móti geti þeir afkastað meiru. Þristarnir verða að læra að þroska með sér trúmennsku og umgangast ekki bara þá sem eru númer eitt. Þú getur hjálpað þristunum með því að fá þá til þess að skilja að þeir eru ekki ein- göngu metnir eftir þjóðfélagsstöðu og bankainnistæðu. Reyndu að fá þá til þess að staldra við og komast í samband við til- finningar sínar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.