Vikan


Vikan - 05.12.2000, Page 19

Vikan - 05.12.2000, Page 19
Ertu raunalegur rómantíker? Mér finnst oft sem lífið sé í raun og veru ekki byrjað. Ég ver löngum tíma í hugsanir um barnæskuna og gamla kærasta/gamlar kærustur. Það skilur mig engin(n). Engin(n) er næmari á tilfinningar annarra en ég. Það er mikilvægt fyrir mig að þróa minn eigin stíl. Að mínu mati eru þeir ekki upp á marga fiska sem líta hjónaskilnaði mildum augum. Ég verð eirðarlaus ef hlutirnir ganga ekki nógu hratt fyrir sig. Ég á mér leyndarmál sem ég segi fáum. Stundum finnst mér sem ég sé að leika hlutverk sem aðrir ætlast til að ég leiki. Ég verð reið(ur) þegar mér finnst mér vera hafnað. Raunalegi rómantíkerinn Ertu eftirtektarsamur? Ég þoli ekki þegar mér finnst ég ekki hafa fast land undir fótum. Mér líður oft eins og ég sé áhorfandi að lífinu þegar ég er innan um annað fólk. Ég segi ekki margt nema þegar mér f innst ég hafa eitthvað til málanna að leggja. Ég á erfitt með að treysta fólki og fáir þekkja mig eins og ég er. Ég hata að eyða tímanum til einskis. Ég vil helst komast hjá því að hamingja mín sé háð duttlungum annarra. Fólk spyr mig oft um hvað ég sé að hugsa. Ég vil fá eitthvað fyrir peningana mína. Fólk ásakar mig oft fyrir að hafa kaldhæðnis- lega kímnigáfu og ég á auðvelt með að koma auga á eitthvað spaugilegt við flestar aðstæður. Ég á erfitt með að biðja um hjálp. Ertu efahyggjumaður? Mér hættir til að ofvernda þá sem mér þykir vænt um. Það þarf ekki mikið til þess að ég verði áhyggjufull(ur). Ég hef stöðugar áhyggjur af því að mér mistakist það sem ég tek mér fyrir hendur. Að mínu mati er allur mótþrói tilgangslaus. Ég skil ekki fólk sem gerir sér lífið erfitt. Það er yfirleitt litið á mig sem trausta(n) og duglega(n) konu/mann. Það tekur mig yfirleitt langan tíma að Ijúka verki þannig að ég sé ánægð(ur). í dagdraumum mínum er ég í hlutverki hetjunnar. Ég hef samúð með lítilmagnanum. Ég geri bara það sem ég hef áhuga á. Efahyggjumaðurinn Fjarkar eru sjarmerandi og næmir á líð- an annarra. Þeir hafa samúð með þeim sem eiga í erfiðleikum því þeir eiga auðvelt með að setja sig í þeirra spor. Fjarkar gera allt til þess að komast hjá því að lifa tilbreyting- arlausu lífi. Þeir telja sig mjög sérstaka og fá það oft á tilfinninguna að aðrir skilji þá ekki. Þeir leyna þessum staðreyndum með því að vera eðlilegir og blátt áfram í hegð- un og klæðaburði. Það aftur á móti kyndir undir þeirri skoðun þeirra að þeir séu leik- arar í leikriti. Fjarkar halda því fram að þeirvilji lifa venjulegu ogrólegu lífi þótt þeir séu í raun ogveru spennufíklarog lifi sjaldn- ast í núinu. Fjarkar þurfa að læra að framkvæma í stað þess að hugsa. Einnig verða þeir að læra að njóta andartaksins og hætta að lifa í ótta við að verða skildir eftir, einir og yf- irgefnir. Þú getur hjálpað fjörk- unum með því að sleppa því að gefa þeim ráðlegg- ingar. Gerðu þér grein fyrir því að þótt þér finnist þeir háttstemmdir til- finningalega þá líta þeir máliðallt öðrum augum. Athugandinn Fimmur eru góðir hlustendur. Þær eru rólegar og blíðlegar og laða fram það besta í fólki, sérstaklega yngra fólki. Þær segja ekki margt, forðast orkuþjófa og gæta þess að flækjast ekki um of í tilfinningaleg mál- efni. Fálæti þeirra fer oft í taugarn- ar á fólki. Fimmunum finnst oft sem þær séu hafðar út- undan á mannamótum og eiga það til að vera hálfgert f felum. Fimmur eru fróðleiksfúsar og leggja meiri áherslu á hugann en hjartað, jafnvel þótt þær séu í rauninni tilfinninga- verur. Fimmur þurfa að læra að oft er betra að gefa en þiggja, þær geti ekki ætl- asttil þessaðöðlastvináttu ef þær gefi ekkert af sér í staðinn. Þær þurfa að sætta sig við það að innsæi er ekki síður mikilvægt en góð greind. Þú getur hjálpað fimmunum með því að virða þörf þeirra fyrir einveru en jafn- framt með því að hvetja þærtil þess að gera meira af því að vera innan um annað fólk. Það er líka afar mikilvægt að vera samkvæmur sjálfum sér í sam- skiptum við fimm- una. Sexur eru tryggir og góðir vinir. Þeim finnst erfitt að lifa og varkárni og öryggis- þörf er þeim eðlislæg. Sexur eru yfirleitt feimnar en kunna svo vel að leyna því að oft er litið á þær sem herskáar frekjur. Þær eru mjög viðkvæmar og móðgast af minnsta tilefni. Þar sem sexurnar eru alltaf viðbún- ar hinu versta eru þær oft góðir sátta- semjarar. Sexurnar þurfa að læra að hætta að hafa stöðugar áhyggjur og taka ekki líf- ið svona alvarlega. Þær ættu að spyrja vini sína oftar ráða og ræða við þá um áhyggj- urnar sem oftar en ekki eru sprottnar af hræðslu og eiga sér enga stoð í raunveru- leikanum. Þú getur hjálpað sexunum með því að sýna þeim fram á að ein röng ákvörðun boði ekki heimsendi. Ekki neyða sexurnar til þessaðtakaákvarðanir, gefðu þeimsvig- rúm til þessaðtaka þær á eigin forsendum.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.