Vikan


Vikan - 05.12.2000, Page 46

Vikan - 05.12.2000, Page 46
Smásaga sagði ég. ,,Ég skal koma með þér og opna fyrir þér. Ég verð að fara aftur í vinnuna." ,,Eins og þú vilt." sagði Lee. Við tókum strætó og ég borg- aði fyrir okkur bæði. Við fórum út á stoppistöðinni sem er rétt hjá húsinu á Park Avenue sem lítur svo glæsilega út utan frá séð. íbúðin sjálf er sjúskuð og ég skammaðist mín svolítið þegar ég bauð honum inn. Amma hafði aldrei haft efni á því að halda húsinu við. Eldhús- ið er fullt af ósamstæðum disk- um og glösum, sófarnir eru drekkhlaðnir rykugum púðum og stór ryðrönd er í baðkerinu undir blöndunartækjunum. Lee dáðist að íbúðinni og sér- staklega baðkerinu. ,,Baðker!“ hrópaði hann upp yfir sig. ,,Við áttum svona bað- ker þegar ég var strákur.“ Hann varð enn glaðari þegar ég vísaði honum inn í stofu. ,,Píanó,“ sagði hann lotning- arfullri röddu. Píanóið vargam- alt ogamma hafði spilað á það, þau fáu lög sem hún átti nótur af, aftur og aftur. ,,Fyrst ætla ég í bað, svo ætla ég að spila á píanóið," tilkynnti Lee. Égfóraftur í vinnuna. Það var föstudagskvöld og klukkan var að verða átta. Kacie sat við skrifborðið og símtækið þagði, aldrei þessu vant. ,,Hún er komin!" æpti Kacie um leið og hún sá mig. ,,Ávís- unin er komin. Sköllótti fjár- festirinn ákvað að vera með. Sjáðu bara.“ Ávfsunin hljóðaði upp á tíu þúsund dollara. ,,Ó, Claire," sagði hún. ,,Nú getum við gefið út fyrsta tölu- blaðið. Þegar okkur hefur tek- ist að gefa það út gæti farið svo að einhver vildi auglýsa í öðru tölublaði og þá getum við gefið út þriðja, fjórða ogfimmta tölu- blað. Þá verðum við alvöruút- gefendur." ,,Það er frábært," sagði ég. ,,Hvernig gengur með blóma- greinina? Við verðum að Ijúka fyrsta tölublaði í hvelIi.“ Kacie brosti til mín og mér hlýnaði um hjartaræturnar. Við unnum langt fram á nótt, lásum allar greinarnar sem okk- ur höfðu borist og völdum þær bestu úr í fyrsta tölublaðið. Klukkan var orðin tvö þegar ég loksins fór heim. Kacie var enn að vinna og minntist ekki einu orði á húslykla. Það var dimmt í íbúðinni. ,,Lee," kallaði ég. Ég leitaði í stofunni og eld- húsinu. Svo sá ég Ijós loga á baðherberginu. Ég bankaði á dyrnar og opnaði varlega þegar enginn svaraði. Hann lá sofandi í baðkerinu með kinnina límda upp við heitavatnskranann. Ég hristi hann til og reyndi að vekja hann en hann var í djúpum svefni. Ég var dauðhrædd um að hann drukknaði og að lokum tók ég það til bragðs að taka tappann úr og fór ekki fram fyrr en allt vatnið var runnið úr baðkerinu. Ég er alls óvön skriftum. Mér finnst óþægilegt að leyfa fólki að lesa hugsanir mínar og kann því illa að afhjúpa mínar leynd- ustu tilfinningar. Mérfinnst það svipað og að hengja olíumálverk utan á hús. En þetta var fyrir Kacie, fyrir tímaritið okkar. Ég vaknaði eldsnemma á laugar- dagsmorgninum til þess að skrifa blómagreinina. Ég sett- ist inn í stofu með hálftóma stílabók frá háskólaárunum. Eftir smástund stóð ég upp og gekk um gólf. Lee lá ekki leng- ur í baðkerinu og ég hugsaði sem svo að líklega væri hann farinn. En svo gekk ég inn á hann steinsofandi í rúminu hennar ömmu. Ég settist aftur inn í stofu. Blóm, skrifaði ég stórum stöf- um efst á hvítt blaðið. Ég hafði nákvæmlega ekkert að segja. Ég hafði bara séð blómin einu sinni og vissi ekkert um þau. Ég upp- götvaði að ég hefði átt að hringja í garðyrkjustjóra borgar- innar og rekja úr honum garn- irnar. Nú var það of seint. Mér leið illa og fannst ég vera að bregðast Kacie. Lee var vaknaður. Hann kom inn í stofu, berfættur í krump- uðum buxum. ,,Áttu eitthvað að borða?" 46 Vikan spurði hann. „Þaðertil brauð," svaraði ég. „Annarserekkerttil nemasæl- gæti." Hann fór inn í eldhús og kom til baka með hnetur í poka. „Hvað ertu að gera?" spurði hann. „Ég er að skrifa svolítið fyrir Kacie," svaraði ég. Hann lagði hnetupokann frá sér á píanóið, settist niður og byrjaði að spila. Ég hafði aldrei heyrt hann spila nema á plötu. Það var ótrúlegt hverju hann náði úrgamla, falska píanóinu. Ég veit ekki hvort lagið sem hann spilaði var eftir hann en það var mjög fallegt. „Þetta er yndislegt,“ sagði ég. „Ekki sem verst," sagði hann. Meðan Lee opnaði hjarta sitt með tónlistinni tókst mér að opna hjarta mitt með skrifun- um. Bláu blómin eru sendi- nefnd frá himnum, skrifaði ég. Þau eru hér til þess að segja okkuraðviðhöndlumekki ham- ingjuna með því að reisa minn- isvarða, mála málverk eða skrifa sögur. Blómin vilja minna okk- urámikilvægi þessaðvera sátt- ur við umhverfið og minna okk- ur á að náttúran er ódauðleg og það sama sé ekki hægt að segja um verk mannanna. Blómin vilja segja okkur að þannig sé þvf alls staðar farið, jafnvel í stórborg eins og okkar þar sem við mannfólkið framleiðum of mikið af Ijósum til þess að geta komið auga á stjörnur himins- ins. Bláu blómin, skrifaði ég, eru smávaxnir sendiherrar Guðs á gangstéttum New York borg- ar. Lee var hættur að spila. Ég var þreytt í hendinni eftir allar skriftirnar. „Leyfðu mér að lesa þetta," sagði hann. Ég rétti honum stílabókina, fór inn í eldhús og smurði mér brauðsneið. Þegar ég kom aftur inn í stofu sat Lee og borðaði hnetur. ,,Sá sem skrifarsvona fallega þarfnast ekki tónlistar," sagði hann. „Þakka þér fyrir,“ sagði ég. ,,Ég þarf á tónlistinni að halda,“ sagði hann. Við sátum saman svolitla stund og horfðum á sjónvarpið þótt ég ætti að vera farin á skrif- stofuna með greinina um bláa blómið. Þegar ég loksins fór þangað hitti ég Kacie fyrir þar sem hún sat og las grein um fjaðrahatta. Hún hafði ekki tíma til þess að lesa greinina mína. Það var mikið að gera fyrstu vikurnar eftir að fyrsta tölublað- ið kom út. Við höfðum hitt í mark. Öll hin tímaritin fjölluðu um Kacie og í næsta tölublaði fjallaði Kacie um að hin tíma- ritin hefðu fjallað um tímaritið hennar og við enduðum í ein- hvers konar tímaritaspeglasal. Nú voru miklu fleiri viðloðandi starfsemina, fólk sem skildi eft- ir óhreinar servíettur og tómar flöskur á skrifborðinu mínu. En þetta voru góðar vikur. Ég vann lengur en nokkru sinni og þeg- ar ég kom heim sat Lee fyrir framan sjónvarpið eða píanóið. Hann hafði náð í gítarinn ein- hvern daginn, gítarinn hafði greinilega ekki verið í kassan- um þegar honum var stolið. Hann var flesta daga í íbúðinni og að lokum flutti hann endan- lega inn. Kacie hafði svo mikið að gera að hún tók varla eftir því. Enn þá höfðum við ekki grætt eina einustu krónu á tímarit- inu en okkur bárust endalaus- ar gjafir. Allir vildu fá umfjöll- un um framleiðslu sína á síð- um blaðsins. Það var allt sam- an gott og blessað en pening- arnir hefðu komið sér betur. Mig vantaði peninga til þess að borga hitareikninginn og kaupa mat handa okkur Lee. Hann lá I sófanum í stofunni liðlangan daginn með krossgátubækurn- ar í fanginu og kveikt á sjón- varpinu. Stundum svaf hann þar þegar ég kom heim. „Það væri líklega gáfulegra af mér að gerast einkaspæjari heldur en að reyna að koma saman annarri hljómsveit," sagði hann einn daginn. „Allt þetta sjónvarpsgláp hlýtur að gera góð undirbún-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.