Vikan


Vikan - 05.12.2000, Síða 48

Vikan - 05.12.2000, Síða 48
Texti: Hrund Hauksdóttir svona er lífið! Kuöldmatur í poka! Við á Vikunni fréttum af konu fyrir norðan sem er einkar hag- sýn og kann þá list að búa til dýrindisrétti úrafgöngum. Eitt af því sem hún gerir reglulega er að sjóða heilan kassa af pasta í einu, renna því soðnu undir kalt vatn og bæta smávegis ólífuolíu út í. Þegar pastað hefur kólnað setur hún það í nokkra plastpoka og geymir síðan inni í ísskáp. Með þessu móti sparar hún bæði tíma og fyrirhöfn þegar kemur að eldamennskunni og á tilbúið pasta til góða næstu vikuna. Hún segist ýmist gera sérstaka pastarétti eða nota pastað sem meðlæti með öðrum mat. Ein af hennar uppáhaldsuppskriftum er þessi: Setjið soðið pasta á botninn á skál sem má fara í örbylgjuofn. Setjið nokkrarteskeið- ar af tómatsósu og rifnum mozzarella osti yfir pastað eftir smekk. Gerið því næst annað lag með sama hætti. Hitið í örbylgjuofni í 3 - 4 mínútur eða þar til osturinn er bráðinn. Berið fram með nýju brauði og salati. Þessi réttur er sannkallaður herramanns- matur og er mjög fljótlegt að útbúa hann. Bráðsniðugt er að geta gripið til svona einfaldra rétta þegar mikið er að gera á stórum heimilum. Sætir sokkar Hver kannast ekki viðeilífa leitað samstæðum sokk- um í skúffunni? Það geturverið pirr- andi að byrja dag- inn á því að finna sokkapör á börnin þegar allir eru að flýta sér í vinnuna og skólann. Oft virðist sem jörðin hafi gleypt annan sokkinn eða þá það eru komin göt á þá. í Rúmfatalagernum fást alltaf barna- sokkar á aðeins 99 krónur sem er ótrú- lega gott verð. Þeir eru vandaðirogým- ist með skemmti- legu mynstri eða myndum af fræg- um teiknimynda- hetjum. Það er því alls ekki úr vegi að bregða sér í Rúm- fatalagerinn og koma sér upp góðu sokkasafni fyrir börnin. Spennandí heíma- síður fyrir börn Mörg börn hafa aðgang að tölvu og á Netinu eru ýmsar skemmtilegar og fræðandi heimasíðurfyr- ir þau, ekki síður en fyr- irfullorðna. Á 21. öldinni koma börn til með að sækja fróðleik og upplýs- ingar í auknum mæli á Netið en foreldrar ættu að vera viðstaddir þegar börnin leika sér á þessum slóðum til að koma í veg fyrir að þau slysist inn á efni sem ekki er ætlað börnum. Hér koma nokkrarslóðirsem eru til- valdar fyrir börn, en tekið skal fram að allt efnið er á ensku. Ask Jeeves for Kids! www.ajkids.com Fyrir 5 ára og eldri. Hér geta börn leitað svara við ýmsum spurningum eins og af hverju himinninn sé blár eða hver sé höfuðborg Argentínu. JuniorNet www.juniornet.com Fyrir 4 ára og eldri. Á þessari heimasíðu þarf við- komandi að borga fyrir áskrift. Þar er að finna sögur, fréttir fyr- ir börn, alls kyns handverk og leiki. Tölvan þarf að vera útbú- in CD - Rom. Yahooligans! www.yahooligans.com Fyrir 4 ára og eldri. Þessi leitarvél gerir börnum kleift að tengjast þúsundum barnvænna heimasíðna. Youth Sports Network www.ysn.com Fyrir 7 ára og eldri. Þessi heimasíða er fyrir börn sem annað hvort leggja stund á fþróttir eða hafa einfaldlega bara gaman af þeim. Stjörnurn- ar á þessari síðu eru börn en ekki fullorðnir atvinnumenn í íþróttum. Hér er gnægð upp- lýsinga um ýmsar íþróttir auk þess sem áhersla er lögð á fræðslu í skyndihjálp og nær- ingarfræði. Tannhirða • Til þess að halda tönnum ungbarna eða eldri barna hreinum er ráðlagt að nota sérstakan barnatannbursta. • Þú ættir að fara með barnið þitt til tann- læknis fljótlega eftir að fyrstu tennurnar koma í Ijós. Oftast er það á milli sex mánaða og eins árs aldurs. • Það er mjög gott að fara með barnið tiI sérfræð- ings í barnatannlækningum þarsem þeireru sér- hæfðir í að meðhöndla börn og það getur kom- ið í veg fyrir að fælni skapist hjá barninu gagn- vart manninum í hvíta sloppnum. • Börn undir þriggja ára aldri þurfa ekki að nota tannkrem. Það er Ifklegt að þau gleypi það og inn- byrði því of mikið magn af flúor. • Ef barnið þitt er eldra en þriggja ára og tekur flú- ortöflur þá getur vel veriðaðtannlæknirinn ráðleggi þér að nota tannkrem fyrir barnið sem inniheldur ekki flúor. • Ræðið við tannlækninn ykkar um öll atriði sem ein- hver vafi leikur á að séu eins og þau eiga að vera.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.