Vikan


Vikan - 05.12.2000, Page 50

Vikan - 05.12.2000, Page 50
Tíska Vikan Það hafa allir gaman af að skreyta sig með skartgripum og á síð- ustu árum hafa hvers kyns líkamsskreyting- ar færst mjög í vöxt. Konur jafnt sem karlar láta setja göt í eyrun, hring í naflann, auga- brúnina og jafnvel tunguna. Svokallað tannskraut, sem límt er á tennur, er hins veg- artiltölulega nýtt af nál- inni en nýtur vaxandi vinsælda hjá yngri kyn- slóðinni. Eva Hrönn Björnsdóttir, framkvæmdastjóri úra- og skartgripaverslunar- innar Rhodium í Kringlunni, segir að tannskraut sé það nýjasta i skartinu, enda sé það mjög töff. „Skrautið er úr ekta gulli og það er einnig hægt að fá með demanti. Þetta er búið að vera geysilega vinsælt í nágrannalöndunum og verður það án efa hér á landi, enda fylgjumst við vel með öllum nýj- ungurn," segir hún og brosir svo glyttir í stjörnulaga skraut á augntönninni. „Það hefur þótt mjög svalt meðal fræga fólksins að vera með gulltönn og þeir sem hafa fengið sér eina slíka eru meðal annars Mel C, Madonna og Goldie," segir Berglind Magn- úsdóttir, afgreiðsl ustú I ka í Rhodium, en sjálf lætur hún tannskrautið nægja. ,,Tann- skrautið er ekki jafnýkt og gull- tennurnar og auðvitað margfalt

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.