Vikan


Vikan - 05.12.2000, Page 52

Vikan - 05.12.2000, Page 52
Sakamál ~ Engu er líkara en það ■° fylgi því einhver bölv- £ un að leika Súper- .= mann fyrir Banda- ~ ríkjamenn. Christoph- - er Reeve sem lék ■2 hann í kvikmyndinni => lenti á dögunum í « slysi sem hafði þær “ hörmulegu afleiðingar E að hann er lamaður " frá hálsi síðan. Geor- ge Reeves, sá sem lék ofurhetjuna í upp- haflegu sjónvarps- þáttunum, dó af skotsárum aðfaranótt 16. júní 1959. JT Ifyrstu var talið fullvíst að hann hefði framið sjálfs- morð en réttarrannsóknar- mennirnir voru fljótir að komast að því að líklega væri ekki svo. Vitað var að Súper- mann átti I ástarsambandi við eiginkonu mafíuforingja en hver drap Súpermann og hvort hann var yfirleitt myrtur hefur hins vegar aldrei verið fullkomlega upplýst. George Reeves fædd- ist í lowa árið 1914. Hann var af miðstéttarforeldrum og æska hans leið tiltölulega baráttu- laust og engin stór vandamál komu upp í fjölskyldunni. Hann varð fljótt heltekinn af leiklist- arbakteríunni og vildi gjarnan vinna við kvikmyndir. Fyrsta tækifærið til að láta þann draum rætast fékk hann þegar honum bauðst að leika annan Tarleton tvíburann í Á hverfanda hveli. Upphafsatriði myndarinnar gerist á veröndinni við íbúðarhúsið á Tara plantekr- unni. Scarlett O’Hara tekur þar á móti tvíburunum, sem hafa verið aðdáendur hennar lengi, og þeir reyna hvor um sig að ganga í augun á henni. Scar- lett er hins vegar of upptekin af Ashley Wilkes til að hafa nokkurn áhuga á öðrum mönn- um og það eina sem þeir gera sem vekur áhuga hennar er þeg- ar annar þeirra segir henni að Ashley Wilkes sé kominn heim eftir nokkurra ára fjarveru. Úánægður með að vera stjarna Þrátt fyrir góða byrjun voru þau hlutverk sem á eftir fylgdu fremur IftiIfjörleg. Hann fékk hlutverk í nokkrum þriðja flokks kvikmyndum þar á meðal einni sem hét Frumskógargyðjan og þótti afburðaléleg. Honum var boðið hlutverk Súpermanns í sjónvarpsþáttaröð en þótt hann yrði að þiggja hlutverkið vegna þess að hann þarfnaðist vinn- unnar var hann ekki neitt sér- lega ánægður með það. Á sjötta áratugnum var sjónvarpið enn talið mun ómerkilegri miðill en kvikmyndir og allir leikararsem töldu sig einhvers virði kusu fremur að ganga milli kvik- myndavera en taka þátt í sjón- varpsþáttagerð. Þátturinn um Súpermann naut hins vegar strax gífurlegra vinsælda, sér- staklega meðal áhorfenda tólf ára og yngri. Teiknimyndablöð- in um Súpermann voru ein þau mest seldu í Bandaríkjunum og útvarpsþættir um ofurhetjuna og stálmanninn höfðu hlotið mikla hlustun. George Reeves var orðinn stjarna en ekki á þann hátt sem hann hefði sjálfur kosið. Hann taldi hlutverkið ómerkilegt og búningurinn, sem var fóðraður til að hinn herðabreiði og vöðva- stælti Reeves virkaði enn meiri, var mjög óþægilegur. Hann átti erfitt með að hreyfa sig í honum og kvartaði undan því að hann klæjaði undan efninu. í Banda- ríkjunum er það svo að þegar menn hafa einu sinni náð fót- festu sem ákveðin persóna í sjónvarpsþáttum er erfiðara að komast undan því en margan grunar. George fékk hlutverk í Óskarsverðlaunamyndinni From Here to Eternity en var klippt- ur út úr myndinni eftir að áhorf- endur á forsýningu hennar hrópuðu allir sem einn „Súper- mann“ þegar hann birtist á tjaldinu. Reeves reyndi að gleyma sorgum sínum í örmum Toni Mannix. Hún var átta árum eldri en hann og í sambúð með vara- forseta MGM kvikmyndavers- ins, Eddie Mannix. Mannix starfaði áður sem útkastari á næturklúbbum og þrátt fyrir fín- an titil var aðalstarf hans að sjá um að stjörnur kvikmyndavers- ins lentu ekki í vandræðum. Eins var honum ætlað að þagga niður öll hneykslismál áður en þau yrðu opinber. Eddie var frá New Jersey og hafði alist þar upp í hverfi sem var þekkt fyr- ir félagsleg vandamál og að þar þyrfti umtalsverða hörku til að komast af. Sögusagnir um að hann leitaði oft á náðir fyrrum vina sinna úr hverfinu þegar kvikmyndaverið þyrfti á að halda voru lífseigar og gera má ráð fyrir að þær hafi átt við þó nokkur rök að styðjast. Eddie átti sjálfur ástkonu og kippti sér því ekki upp við það að kona hans héldi í arm Súpermanns á kvöldin. Ástfanginn af samkvæm- isljóni Toni og George voru því ekk- ert að leyna sambandi sínu og þau sáust víða á skemmtistöð- um sem fræga og ríka fólkið sótti í Los Angeles. Toni var ör- iát og vitað var að hún jós gjöf- um yfir elskhuga sinn og gaf honum meðal annars húsið sem hann bjó í. Árið 1958 fór Reeves hins vegar einn til New York í viðskiptaerindum og þar hitti hann Leonore Lemmon. Svovirðist sem George hafi fall- ið umsvifalaust fyrir stúlkunni en hún var af yfirstéttarættum og þekkt í samkvæmislífinu fyr- ir skemmtanagirni og villt líf- erni. Hún var einnig þekkt fyr- ir hversu skapbráð og skapmik- 52 Vikan

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.