Vikan


Vikan - 05.12.2000, Side 56

Vikan - 05.12.2000, Side 56
Frá lesendum V. Brjost prS fppra 0pir\/ Kæri Póstur Ég er 35 ára gömul kona og er mjög óhress með útlitið á brjóstunum á mér. Áður en ég eignaðist börnin mín tvö var ég alltaf mjög ánægð með brjóstin þótt þau væru reyndar frekar lítil en þau voru stinn og falleg í laginu. Nú hafa þau stækkað og eru sigin. Ég get ekki vanist því að brjóst- in séu einsog hálffylItir húðpokarsem hrist- ast eins og búðingur þegar ég hreyfi mig. Þetta hefur slæm áhrif á mig varðandi kynlífið þótt maðurinn minn segi að hon- um finnist brjóstin bara eðlileg og falleg. Mig dauðlangar að fara í einhvers konar brjóstaaðgerð en er rög við það. Á ég að láta slag standa og fara í aðgerð? Bestu kveðjur, Nína. Kæra Nína Þetta er nokkuð sem hver kona þarf að eiga við sjálfa sig og taka ákvörðun út frá eigin brjóstviti. Égtel að þú ættirað leggja á vogarskálarnar hversu slæm áhrif ástand brjóstanna hefur á andlega líðan þína. Ef þú ert þjökuð af áleitnum hugsunum varð- andi þetta mál þá er sjálfsagt að leita til lýtalæknis og ræða málin við hann. Hann geturfrætt þig um allt sem lýtur að brjósta- aðgerðum, kosti þeirra og galla. Þegar um brjóstasig er að ræða þarf oft að færa geirvörtuna til og svo þarf hugsan- lega fyllingu í brjóstin en þá er annað hvort notast við svokallaða saltvatnspoka eða si- íkon. Aðgerðin fer fram í svæfingu og þú máttgera ráðfyrir að vera mjög kvalin fyrstu dagana á eftir og aum í brjóstunum í nokkr- ar vikur. Fjölmargar konur, sem hafa liðið fyrir útlit brjósta sinna, hafa farið í svona aðgerð og segja að það hafi verið eins og nýtt líf á eftir, sjálfstraust þeirra hafi aukisttil muna og kynlífið orðið mun skemmtilegra þarsem þær skömmuðust sín ekki lengur fyrir brjóstin.Það eru lika til mörg dæmi um hið gagnstæða. Margar konur hafa orðið gjörsamlega miður sín eftir brjóstaaðgerðir og ekki tekist að sætta sig við hið nýja útlit brjóstanna, sérstaklega þegar ekki hefur tekist vel til. Hins vegar fylgir svona aðgerðum ákveð- in áhætta og ef þú hyggst fara á fund lýta- læknis þá skaltu fara fram á að hann upp- lýsi þig um hvað geti misfarist og jafnvel fá að sjá myndir af misheppnuðum aðgerð- um. Eftir að þú hefur talað við lýtalækni og fengið svör við öllum þínum spurning- um þá skaltu íhuga málið vandlega út frá öllum sjónarhornum, áður en þú tekur end- anlega ákvörðun. Mig langar þó að bæta við þessi orð mín að brjóst eru alltaf falleg hvort sem þau eru lítil eða stór, stinn eða slöpp. Þau eru einfald- lega hluti af líkama okkar kvenna sem eðli- lega breytist í kjölfar barneigna og með aldrin- um. Margar konur eru alsælar með sín mjúku og slöppu brjóst og finnst þær jafn- vel kvenlegri fyrir vikið. Þær lifa í full- kominni sátt við likama sinn og þann þroskaferil sem hann fer í gegnum. Ef konurgeta hins vegarómögulega sætt sig við útlit brjóstanna og líða andlegar kval- ir vegna þess, þá er sjálfsagt að ræða við lýtalækni og kynna sér allt um brjóstaað- gerðir. Gangi þér vel. Spurningar má senda til „Kæri Póstur“ Vikan, Seljavegi 2, 101 Reykjavík. Farið er með öll bréf sem trúnaðarmál og þau birt undir dulnefni. r Vikunnar Anna María Kristjánsdóttir hafði samband við ritstjórn Vikunnar nýlega og óskaði eftir því að Lóa Jónsdóttir á Hellu fengi rós Vikunnar: ,, Hún Lóa CJ k. M stóð sig eins og hetja eftir jarðskjálftana í júní síðastliðið sumar en þá W missti hún mikið af innbúi sínu og húsið hennar var úrskurðað ónýtt. Hún ..^ var ein heima þegar ósköpin dundu yfir og hún varð mjög hrædd um fólkið sitt. Sonarsynir hennar komu þófljótt á vettvangog létu Lóu vita aðallir væru heilir á húfi. Lóa bjó í hjólhýsi þar til hún fékk bráðabirgðahúsnæði hér á Hellu. Það er búið að rífa niður húsið hennar og það er tómlegt að ganga fram hjá lóðinni þar sem áður stóð tveggja hæða hús og allt fullt af blómum í gluggunum, en Lóa elskar blóm. Því vona ég að hún verði ánægð að fá sendar rósir frá Vikunni sem hún getur haft í nýja húsinu sínu. Ég þekki Lóu nánast ekkert en mér finnst hún aðdáun- arverð kona sem stendur af sér erfiðleika af ótrúlegum styrkleika og svo er hún alltaf brosandi ogtilbúin að aðstoða þá sem þurfa á hjálp að halda." Rós Vikunnar Þekkir þú einhvern sem á skilið að fá rós Vik- unnar? Ef svo er, hafðu þá samband við „Rós Vikunnar, Seljavegi 2,121 Reykjavik" og segðu okkur hvers vegna. Einhver . heppinn verður fyrir valinu og fær sendan glæsilegan rósavönd frá GRÆNUM MARKAÐI. GRÆNN MARKADUR látið blómin tala 56 Vikan

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.