Menntamál - 01.03.1935, Page 63
MENNTAMÁL
61
hve sú kennsla er af vanefnum gerÖ, því aÖ engrar tilsagnar
hefi eg notiÖ i þeim fræðum, fremur en aðrir eldri kennarar,
nema hvað eg var einu sinni nokkra daga á tréskurðarnáms-
skeiði hjá Ríkarði Jónssyni, listamanni. Mér hefir verið mikill
styrkur að þvi. —• Leikfimiskennsla min hefir verið ófullkom-
in. Húsið er til, en áhöld engin enn þá. En börnin eru býsna
ánægð með staðæfingar, leiki o. f 1., sem hægt er að kenna
áhaldalítið. Eg hugsa, að þau mundu einna sízt vilja missa þá
tíma. — Sundlaug er hér engin, og því ekki að ræða um þá
ágætu íþrótt. En sundlaug er til hér í sveitinni og þar læra
mörg börn að synda á vorin.
Útivcra. Þegar kennslu er lokið á daginn, fara börnin allt-
af út að leika sér í færu veðri. Ekki skortir góða leikstaði hér
í grenndinni: slétta velli, kletta, sleðabrekkur og ágætt skauta-
svell, þegar frostar. Það er líka mikið notað. Börnin hafa mik-
inn áhuga á skautaíþróttinni. Um skíðaferðir er ekki að ræða,
því að snjólítið hefir verið undanfarna vetur. Man eg þó, að
eitt sinn var skíðafæri um tíma og strákar ruku þá til og
smíðuðu skíði handa sér. En góðum skíðamönnum hefðu sjálf-
sagt þótt þau léleg! — Við skálann er malborinn leikvöllur
og tún rétt hjá. Þar leika börnin sér i stundahléum. — Þegar
bjart er og gott veður, leika börnin sér úti á morgnana dálitla
stund, áður en kennsla hefst. Ef veður hamlar útivist, leika
þau sér í leikfimissalnum. En eg legg áherzlu á, að þau séu
úti, þegar fært er.
Lestími. í lestímanum, kl. 5—7 síðd. vinna börnin sjálf-
stætt i skólastofunni. Gilda þá sömu reglur og á lesstofum:
kyrrð, svo að allir geti unnið. Stundum gengur það skrykkj-
ótt, en oftast sæmilega og vel. Eg er þá stundum hjá börn-
unum og hjálpa þeim með eitt og annað. Flýtir það mjög fyrir
starfinu, einkum er það þægilegt, þegar öll börnin eru í heima-
vist. Þá er ágæt aðstaða með frjáls vinnubrögð. Og undanfarið
hefi eg reynt að færa kennsluna i það horf og gefist prýðilega.
Kvöldvakan. Kl. 8 safnast heimafólk venjulega allt sanmn í
borðstofunni, sem er mjög rúmgóð. Þá hefst kvöldvakan. Einn