Menntamál - 01.03.1935, Blaðsíða 64
62
MENNTAM/ .
-sN;'
les venjulcga upphátt, en hinir vinna. Drengir smíÖa smáhluti,
búa til bursta, mottur o. fl. Stúlkur sauma, prjóna eÖa hekla.
Ef annaÖ verkefni er ekki fyrir hendi, teikna bæði piltar og
stúlkur. Er það bæði til gagns og gamans. Teikning finnst mér
alveg ómissandi námsgrein í heimavistarskóla. Hún hefir stytt
margar stundir fyrir mér þessi ár. Það vanta oft verkefni i
bili, og þá hefi eg æfinlega gripið til þess, að láta börnin teikna.
Það er meiri vandi en margur hyggur, að sjá börnunum fyrir
nægu verkefni við þeirra hæfi. En takist það, verður starf
kennarans létt. — Oft fer góð stund af vökunni til þess, að
segja börnunum til við verklegu störfin. Það er óhjákvæmi-
legt. — Margt hefir verið lesið á kvöldvökunum. Lesefni er
vandi að velja, svo að allir fylgist með. En þegar það tekst,
eru kvöldvökurnar skemmtilegar stundir. Lesarinn verður að
vera góður. Ekki vil eg ráðleggja neinum, að láta illa læs börn
lesa á kvöldvökunum. Það er gagnslítið starf. — Hér vil eg
geta eins, sem mér hefir gefist mjög vel. Það er að lesa á
kvöldin ritgerðir og sögur, sem börnin sjálf hafa samið. Það
lesefni vekur langmestan fögnuð. Eg geri það oft til gamans,
að lesa ekki nöfn höfundanna. Það er þá leikur barnanna að
gizka á nafn höfundar. Veldur það oft mikilli gleði. Oftast er
ekki mikill vandi að sjá, hver er höfundurinn. Andlitsliturinn
segir til þess! — Ritgerðir barnanna hafa skemmt okkur margt
kvöldið. Og um margt hafa þau skrifað. Eg læt þau byrja strax
og þau koma í skólann, að skrifa ritgerðir um ýmis efni. Það
gefst ágætlega. Þau æfast furðu fljótt í að færa hugsanir s'mar
í búning ritmálsins. Yngri börn eru furðu snjöll að semja
smásögur. —• Sýnishorn af ritsmíðum barna hér, er að sjá í
timaritinu „Sunnu“, sem kennarar þekkja. Þar hefi eg einnig
skrifað smágrein um kvöldvökurnar hér og fjölyrði því ekki
meira um þær í þessari ritgerð.
í vökulokin er lesinn stuttur lestur eða sunginn sálmur. Sið-
an gengið til hvílu og ljós slökkt kl. io, svo sem fyr greinir.
Skemmtanir o. fl. Þá hefi eg lýst að mestu leyti daglega
starfinu. Eftir er þá að lýsa tilbreytni heimilislifsins, tyllidög-