Menntamál - 01.03.1935, Síða 75
MENNTAMÁL
73
un félagsins, 24. jan. 1932. Á stofnfundi voru 52 félagar.
Félagatalan jókst mjög ört, fyrir atbeina skáta og skóla-
barna Austurbæjarskólans í Rvik, var þá talin um 900.
Má heita, aS sú tala haldist ennþá.
Strax á fyrsta ári liðsinnti félagið nokkrum blind-
um mönnum, lét kenna þeim smá-iðnað, aðallega bursta-
og körfugerð; einnig sá fél. um sölu á vinnu þeirra.
Kennslukona, ungfrú Ragnheiður Kjartansdóttir frá
Hruna, var þá ráðin til utanfarar á vegum félagsins,
um haustið 1932. Kynnti hún sér allt, sem kennslu blindra
manna snerlir, bæði í Danmörku og Svíþjóð. — Næsta
haust eftir byrjaði hún kennslu i Rlindraskóla íslands
með fjórum nemendum, 10—16 ára gömlum. Jafnhliða
Blindraskólanum var stofnsett vinnustofa fyrir fulltíða
blinda menn. Fer þar fram verkleg kennsla. Kennslu
og annarar aðstoðar í skólanum og vinnustofunni liafa
alls notið 25 blindir menn, ungir og gamlir.
Fyrir atbeina félagsstjórnarinnar, liefir ríkisstjórnin
lánað síðastliðið ár 10 útvarpstæki lianda fátækum,
blindum mönnum, ennfremur veitt þeim um fimmtíu
undanþágur frá greiðslu á afnotagjaldi útvarps. Alþingi
hefir heimilað ríkisstjórninni að veita hin sömu hlunn-
indi á yfirstandandi ári.
Mesta áherzlu vill félagið leggja á að fyrirbyggja
blindu, með fræðslustarfsemi um ýmsa augnsjúkdóma
og varnir gegn þeim. Erindi, sem formaður félagsins,
Sig. P. Sívertsen, flutti í útvarpið: Blindir menn og
Blindravinafélag Islands, hefir fél. látið prenta. Erindi
þetta er mjög athyglisvert fyrir margra hluta sakir.
Þar má sjá samanburð á tölu blindra manna hér og er-
lendis. Er hún þrefalt hærri hér en þar sem hún er
hæst annarsstaðar, og nær tifalt hærri en þar sem hún
er lægst, miðað við fólksfjölda.
Glaukomblinda heitir bæklingur, sem Helgi Skúlason
augnlæknir hefir gefið út. Það er mjög lærdómsrík bók