Menntamál - 01.03.1935, Qupperneq 81
MENNTAMÁL
79
The child’s conception of the World. London 1929. Hugmyndir
barna um veröldina, um Hfið, um uppruna sólar og lungls, hug-
myndir þeirra um uppruna vatnsins, trjánna, fjallanna og jar'fi-
arinnar o. m. fl.
The child’s conception of Physical causality. London 1930.
Rannsóknir á því, hvernig börnin gera sér grein fyrir orsakasam-
bandinu í náttúrunni umhverfis þau: Hvernig hreyfast skýin?
Hvaðan koma skuggarnir? Hvers vegna fljóta bátarnir? Hvað
knýr reiðhjóíin? bílana? flugvélarnar? o. s. frv.
The Moral Judgment of the child. London 1932. Þessari bók
er að nokkru lýst á öðrum stað i þessu hefti, í greininni: Upp-
eldi og lýðræði.
Sigurður Thorlacius.
Vmislegt.
Foreldrablaðið.
í haust hljóp af stokkunum i Reykjavik nýtl iilað, er hefir
það markmið að auka skilning almennings á skólastarfinu. Heit-
ir það „Foreldrablaðið“. Tvö hefti voru komin út fyrir áramót,
20 síður hvort, með myndarbrag og snyrtimennsku. Nokkrar
athyglisverðar greinar voru í heftunum. Blaðið hefir borgast
með auglýsingum, en börnin bera það með sér úr skólunum,
ókeypis, inn á heiinilin. Uppl. ca. 3000. Stéttarfél. barnakenn-
ara í Rvík hefir hrint málinu i framkvæmd, en ritstjórn skipa
nú: Arngrímur Kristjánsson, Hallgr. Jónsson, Jón Sigurðsson,
Sigurður Jónsson skólastj. og Sig. Thorlacius skólastj. — Mennta-
málum er kunnugt um, að allviða á landinu eru gefin út for-
eldrablöð eða kennaramálgögn, vélrituð. Óskast þau send
Menntamálum til umsagnar.
Nefndir.
Fræðslumálastjórnin hefir í haust .skipað tvær nefndir úr
hópi kennara, til þess að gera tillögur um vinnubóka- og skrift-
arkennslu.
Skriftarnefnd skipa: Guðm. 1. Guðjónsson, Sig. Thorlacius og
Steingr. Arason.
f Yinnubókanefnd eru: Aðalst. Sigmundsson, Guðjón Guðjóns-
son og Guðm. I. Guðjónsson. Nefndir þessar eiga að skila til-