Menntamál - 01.06.1940, Page 3

Menntamál - 01.06.1940, Page 3
Menntamál. XIII. ár. 1940 Jan.—júní GUNNAR M. MAGNÚSS: Einar Benediktsson, skáld (1864— 1940) Einar Benediktsson, höf- uðskáld íslenzku þjóðar- innar á fyrsta þriðjungi 20. aldarinnar, er dáinn, 75 ára að aldri. í nálega 40 ár hafði hann verið mjög um- talaður maður í íslenzku þjóðlífi og oft aðsópsmikill á opinberum vettvangi. En á seinustu árum varð hljótt um Einar Benediktsson sem mann. Hann dró sig út úr háreisti og þys fjölmenn- isins, og átti heima í Her- dísarvík, afskekktri jörð suður á Reykjanesskaga. Þar lifði hann í kyrrþey í umhverfi stórbrotinna náttúruafla, þar æddu stormar af opnu hafi og brimrótið barði ströndina án afláts. Ef til vill var þarna afskekktasti bærinn á íslandi. En nú kvað Einar Benediktsson ekki lengur um stórfengleika úthafsins, hamfarir stormsins, brimrastir eða dulmögn hinnar hrjúfu, íslenzku auðnar. Harpa hans var þögul. En eftir því sem hljóðara varð um Einar Benediktsson sem mann, opnuðust augu fleiri og fleiri manna fyrir honum sem skáldi. Að vísu hafði þjóð- 1

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.