Menntamál - 01.06.1940, Blaðsíða 47

Menntamál - 01.06.1940, Blaðsíða 47
MENNTAMÁL 45 nútíminn hefir tilhneigingu til að kalla gamaldags, að kennarinn verður að gefa gott fordæmi i smáu og stóru. Óregla, ónákvæmni og hirðuleysi í skólastarfi kennarans, getur verið bein orsök þess, að börnin hagi sér á svipaðan hátt. Kennarinn verður að koma hlutunum þannig fyrir, að möguleikar fyrir agabrot verði sem fæstir. Og hann hefir svo mikið frjálsræði nú, að honum er í sjálfsvald sett að nota þær aðferðir, sem honum henta bezt. En allt slíkt verður að gerast af yfirlögðu ráði og miðast við það, að skólinn sem heild hafi af því sem bezt not. Gerum ráð fyrir, að allir þessir þættir starfsins séu í góðu lagi. Eftir eru þó stærstu kröfurnar á hendur kenn- aranum, en þær eru: 1. Að kunna vel það sem kenna á og búa sig undir hvern tíma. 2. Að þekkja vel gáfna og þroskastig barnanna, og kenna samkvæmt því. 3. Að skilja barnið og geta sett sig í spor þess. 4. Að hafa ánægju af starfinu. Hæfileikar kennarans til að skilja einstaklinginn eru afar nauðsynlegir og þýðingarmiklir. Það er skilyrði fyrir vinnufúsleik og vinnugleði barns, að kröfur, sem til þess eru geröar séu í hófi. Þetta getur verið mjög misjafnt, jafnvel í sömu deild. Og þótt t. d. líkamsæfingarnar séu ætlaðar öllum jafnt í sama hóp, þá verður þó að taka fullt tillit til einstaklinganna um þroska, hæfni og úthald. Að gera sömu kröfur, einstrengingslega, til allra jafnt, hvað sem hinu persónulega líður, getur orðið aganum hættulegt og heilsunni líka. Þegar lítið gefið barn reynir allt, sem það getur og nær með því tiltölulega góðum árangri, þá er rétt að láta það finna það og alla vita, að iðni og dugur getur hjálpað hverjum sem er. Ekkert treystir betur gott samband milli barnanna og kennarans en sú fullvissa þeirra, að hann sé réttlátur. Það er lyftistöng góðs aga. Og þetta sýnir enn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.