Menntamál - 01.06.1940, Page 37
MENNTAMÁL
35
un. Á þetta sérstaklega við um nafnorðin, og eru dæmi
um það áður tilfærð. Hver, sem les orðalistann yfir, mun
þó sannfærast um, að á honum eru einungis algeng orð,
en engu aö síður væri hæpið að taka hann eins og hann
liggur fyrir og fullyrða, að þetta væru algengustu orð-
myndir málsins, enda ber ekki að taka hann í heild svo
bókstaflega. Hann er birtur hér óbreyttur sem liður í
stuttri greinargerð, eins og hann myndaðist í talningunni
samkvæmt fyrirfram ákveðnum reglum.
Hinu veröur ekki gengið framhjá, að meginþorri þessara
orðmynda er samkvæmt talningunni almennt notaður
jafnt af ungum sem gömlum, og það þótt ritað sé um ólík
efni, og má af því ætla, að raunverulega sé orðalistinn
nálægt því að sýna notkun algengustu orðmyndanna, þeg-
ar tiltölulega fáar eru undanskildar. Talningin styður þetta
einnig á annan hátt. Eins og áður er frá skýrt, þá voru
einungis teknar á orðalistann þær orðmyndir, sem fundust
10 sinnum eða oftar í öllu lesmálinu. Aðrar beygingar-
myndir margra þeirra komu þó oft fyrir, þótt engin ein
þeirra næði þeirri lágmarkstíðni, sem þurfti til að komast
á listann. Sé þeim bætt við tilsvarandi orðmyndir á list-
anum, þá hækkar tíðni þeirra að mun, en aðrar, sem enga
viðbót fá á þennan hátt, standa vitanlega í stað með tíðni.
Auk þess eru sumar orðmyndir á listanum alltíðar sem
fyrri hluti samsettra orða, og má líta svo á, að það hækki
tíðni þeirra, sem því nemur.
Þá voru ennfremur valin úr talningunni öll þau orð, sem
í samanlögðum beygingarmyndum höfðu hvert tíðni 10
eða hærri, en það’ voru alls 403 sjálfstæð orð. Einnig var
athugað, hve oft þau komu fyrir sem fyrri hluti samsetts
orðs og þess gætt um leið, að engin orðmynd væri tvítalin.
Þær niðurstöður, sem alls fengust af rannsókninni, eru
því í stuttu máli þessar:
3*