Menntamál - 01.06.1940, Síða 58

Menntamál - 01.06.1940, Síða 58
56 MENNTAMÁL hverri. Ég vil skjóta þessu máli til áhugamanna á sviði skólamálanna. Áhugamenn fyrir skíðaíþróttinni fluttu 5—10 r.hnútna þætti í útvarpið einu sinni í viku nálega heila vetur. Ferðafélagið hefur einnig haft slíka útbreiðslu eða leiðbeiningaþætti í útvarpinu. Er ekki tímabært, að skólarnir hefji slíka kynningar og fræðslustarfsemi gegnum útvarpið; ekki með steypiflóði af löngum og ýtarlegum fyr- irlestrum, heldur stuttum greinargerðum um hin daglegu viðfagnsefni skólanna, samtali við fólkið um breytingar og nýmæli á þessum sviðum, svör við fyrirspurnum eða ádeil- um o. s. frv. Hér er vissulega um auðugan garð að gresja og vonandi nóg af áhugamönnum, til þess að „frambera gott úr góðum sjóði hjarta síns“. III. Um leikmennt. Nokkrir athyglisverðir atburðir hafa gerzt í leiklistarlífi höfuðstaðarins upp á síðkastið. Eins og eðlilegt er, hefur íslenzk leiklist einna öruggasta fótfestu í fjölmenni Reykja- víkur, þar er alla jafna beztu leikkröftum á að skipa, og margir menningarstraumar leika ört gegnum hjarta höfuð- staðarins. Leikfélag Reykjavíkur hefur starfað um langt skeið, og haldið uppi leiksýningum á hverjum vetri um 40 ára skeið, oft með virðuleik og menningarbrag. Hefur félagið hlotið opinberan styrk ríkis og bæjar. Mun sá styrkur vera veittur í því skyni, að félagið haldi uppi þjóð- nýtri og virðulegri leiklist. Nú hefur svo undarlega borið við á þessu leikári (1939— 40), að þrjú af leikritum þeim, sem félagið hefur tekið til sýninga, hafa verið bönnuð fyrir börn innan 16 ára aldurs. Hið fyrsta var „Sherlock Holmes“, spæjaraleikur, annað „Fjalla-Eyvindur“ Jóhanns Sigurjónssonar, og hið þriðja skopleikurinn „Stundum og stundum ekki“. Auk þessa hafa verið afturkallaðar sýningar á fjórða leikritinu, sem auglýst

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.