Menntamál - 01.06.1940, Page 61
MENNTAMÁL
59
virðist veta komið að því raunverulega augnabliki í lífi
mannkynsins á þessu jarðarkrili, þegar helstefnan og lífs-
stefnan heyja úrslitaorustu. Frjálshuga menn um heim
allan bíða með eftirvæntingu úrslitanna í þessum djöful-
magnaða hildarleik.
Sá stórviðburður gerðist i sögu íslands, að landið var her-
numið af brezkum her, sem gekk hér á land 10. maí síðastl.
Hernám íslands var auðvelt, enginn hreyfði hér hönd né
fót til andspyrnu. Fólk var rólegt en forvitið. Alþing ís-
lendinga hafði lýst yfir sjálfstæði landsins, nóttina eftir
hertöku Danmerkur 10. apríl s. 1., þegar sýnt þótti, að
sambandið milli Danmerkur og íslands var að fullu rofið.
Nú spurðu menn: Eru Bretar hingað komnir til þess að
þurrka sjálfstæði landsins út, undir yfirskini verndar?
Er þjóðin á ný hneppt í fjötra verzlunarhapta, fjármála-
og viðskiptaeinræðis? Og menn spyrja enn. Bretar hafa
að vísu lýst yfir því, að þeir muni ekki skipta sér af stjórn
landsins, en vitanlega er slík yfirlýsing lítil trygging fyrir
því, að sjálfstæði þjóðarinnar rýrni ekki á komandi tím-
um. Stjórn landsins inn á við gengur nokkurn vegin reglu-
bundið á venjulegum timum, en utanríkismálin eru háð
sveiflum, sem eiga sér stað úti i heimi og oft skella óvænt
á okkar litla þjóðfélagi. Það veltur því á miklu fyrir ís-
lenzku þjóðina, hvernig fer um utanríkismálin í náinni
framtíð. Fáum við að halda verzlunar- og viðskiptafrelsi?
Fær þjóðin sjálf að hagnýta sér sitt eigið land? Verður
réttur smáþjóða yfirleitt nokkurs virtur upp úr þessari
ógnarstyrjöld?
Brezka herliðið, sem hér hefur verið sett á land, mun
hafa sýnt hér fulla kurteisi í almennri framkomu og við-
skiptum. En þeirri kurteisi fylgir þó sá andi, að ekki tjái
móti Bretum að mæla undir þessum kringumstæðum. Þeir
hafa að ýmsu leyti fært þjóðinni þungar búsifjar. Þeir
hafa fært ófriðarhættuna að bæjardyrum íslenzku þjóðar-
innar. Þeir hafa teflt í tvísýnu lífi íslenzkra sjómanna