Menntamál - 01.08.1942, Síða 19
MENNTAMAL
9
loknum nokkrum reynslutíma í skólanum. Þeir einir,
sem að dómi kennara skólans hafa á þeim tíma sýnt
ótvíræða hæfileika til kennaranámsins, geta fengið að
halda náminu áfram.
Kennararéttindi. Þeir nemendur skólans, sem ekki hafa
áður lokið kennaraprófi í Kennaraskólanum, eiga þess kost
að stunda nám í íslenzku, heilsufræði, uppeldisfræði og
skólasögu. Fái þeir staðist próf í þessum greinum svo og
kennarapróf í verklegum greinum Handíðaskólans, öðlast
þeir réttindi til að starfa sem sérkennarar í verklegum
greinum í barnaskólum, enda séu þeir fullra 20 ára að
aldri, þegar þeir ljúka kennaraprófinu.
II. Kennaraskólinn.
Handíðaskólinn heldur uppi kennslu í handíðum fyrir
nemendur í öllum bekkjum Kennaraskólans. Nám þetta
er valfrjálst og ókeypis. Þó skulu nemendur greiða áhalda-
og verkfæragjöld til skólans samkvæmt reglum skólans.
Skólastjóri Kennaraskólans ákveður nánar um tilhögun
námsins.
III. Kennsla fyrir starfandi barnakennara.
Starfandi barnakennarar í Reykjavík og nágrenni eiga
kost á að fá kennslu í nokkrum af námsgreinum kennara-
deildarinnar, samkvæmt nánara samkomulagi. Kennsla
þessi er 2 stundir í viku og er ókeypis.
Kennaranámskeið verða haldin öðru hverju, að vori eöa
sumarlagi, samkvæmt nánari ákvæðum fræðslumála-
stjórnarinnar.
.IV. Öryrkjadeild.
í samvinnu við „Sjálfsbjörg, félag til styrktar lömuðum
og fötluðum", heldur skólinn uppi verklegri kennslu fyrir
lamaða og fatlaða unglinga.
V. Myndlistardeild.
Kennsla í teikningu og málaralist, 1. okt. til 30. apríl.