Menntamál - 01.08.1942, Síða 41
MENNTAMÁL
31
ISmiriailag’ §tarf§manna
ríklis bæ|a
Fyrir allmörgum árum kom til tals að stofna sameig-
inlegt hagsmunafélag allra embættismanna og starfsmanna
ríkisins. Af félagsstofnun varð þó eigi og lá hugmyndin
niðri um hríð. Fyrir tveimur árum komst aftur hreyfing
á málið, og í janúar 1941 var haldinn sameiginlegur fund-
ur með fulltrúum frá ýmsum félögum opinberra starfs-
manna, til þess að ræða um sambandsstofnun. Styrjöldin
hafði þá geisað hálft annað ár, verðlag á vörum, inn-
lendum sem erlendum, hækkað mjög í landinu, en kaup-
gjald fastra starfsmanna hins vegar ekki hækkað í sam-
ræmi við hina hraðvaxandi dýrtíð. Mun styrjaldarástand-
ið og dýrtíðin þannig hafa átt veigamesta þáttinn í því,
að ýmsar stéttir sameinuðust um félagsstofnun eða banda-
lag, til þess að vinna að hagsmunamálum sínum. Á þess-
um janúarfundi var bandalagið eiginlega stofnað, því að
þá var kosið fulltrúaráð, er starfaði sem bráðabirgða-
stjórn, þar til endanlega yrði gengið formlega frá stofn-
uninni. Hóf fulltrúaráðið þegar störf og undirbjó nokk-
ur nauðsynjamál, sem ekki þoldu bið. Tókst góð samvinna
milli stétta þeirra, sem hlut áttu að máli, en í febrúar
1942 voru samþykkt lög fyrir félagið, sem þar með var
formlega stofnað og hlaut nafnið: Bandalag starfsmanna
ríkis og bœja.
Þessi starfsmanna- og stéttafélög eru innan Bandalags-
ins:
Starfsmannafélag Siglufjarðar, Vestmannaeyja, Hafnar-
fjarðar, Reykjavíkur, ríkisstofnana, Ríkisútvarpsins,