Menntamál - 01.08.1942, Page 63
MENNTAMÁL
53
Sjálf fundarstjórnin hvílir á margra herðum, þar sem hver
ber sinn hluta af ábyrgðinni, og enginn má bregðast.
Þarna lærist að bókfæra tekjur og gjöld á mjög fullkom-
inn hátt, þarna lærist að skrifa nákvæmar fundargerðir,
þarna lærist að hlýða föstum fundarsköpum, greiða at-
kvæði og telja atkvæði, kjósa sér starfsmenn og yfirleitt
allt það, sem fyrir kemur í félagslífinu síðar á æfinni.
Þá gefur fræðslu- og skemmtistarfið ótæmandi tæki-
færi til þjálfunar og fágaðrar, óþvingaðrar framkomu.
Þarna eru börnin vanin við að koma fram og flytja ýmis-
legt til fræðslu og skemmtunar, og stundum frumsamið
efni. Þau lesa upp kvæði og sögu, leika smáleiki og samtöl,
sýna skrautsýningar, söngdansa og fimleikaæfingar, leika
á hljóðfæri o. m. fl. Þetta undirbúa þau allt sjálf og bera
ein ábyrgð á þessum þáttum. Þá eru stundum gefin út
blöð, skrifuð eða fjölrituð, sem lesin eru upp á fundum.
Stundum gangast börnin fyrir fjársöfnun til ýmissa
menningarstarfa. Yfirleitt getur rúmast innan þessa fé-
lagsramma hverskonar starfsemi, er til heilla horfir. Ýms-
ar nefndir eru þarna jafnan starfandi, sem hver hefur sitt
ákveðna verk að vinna. Loks má geta þess, að félagsskap-
urinn er byggður á kristilegum grundvelli, og það út af
fyrir sig veitir honum mikið upeldisgildi. Allt starfið stefn-
ir í eina átt: Að hafa holl og þroskandi uppeldisáhrif á
börnin.
Ég hef oft heyrt deilt á kennarastéttina fyrir það, hve
lítinn þátt hún taki í þessari starfsemi, en sú ádeila er
ekki réttmæt, því að af þeim 52 aðalforstöðumönnum er
barnastúkum stjórna, eru 25 skólastjórar eða kennarar,
og auk þess sex kennarar, sem eru varagæzlumenn í barna-
stúkum. En ég skal játa það, að helzt kysi ég, að starfsemi
þessi væri að öllu leyti í höndum kennaranna, og þótt
margir góðir menn utan kennarastéttarinnar vinni nú
að þessu uppeldisstarfi, þá hafa þó kennararnir, fyrir
margra hluta sakir betri aðstöðu til að gera starfið þrótt-