Menntamál - 01.09.1945, Page 4
114
MENNTAMÁL
erlendar fréttir af skólamálum aldrei verið eins fjöl-
breyttar í Menntamálum og á meðan hann var ritstjóri.
Síðar í þessu hefti er skrá yfir greinar hans í Mennta-
málum.
En störf Sigurðar að menningarmálum þjóðarinnar
voru fjölþættari en þetta. Hann átti sæti í nefnd þeirri,
sem undirbjó fræðslulögin frá 1936. Hann var í mörg ár
fulltrúi kennarastéttarinnar í Barnaverndarráði. Hann var
skipaður formaður Ríkisútgáfu námsbóka á síðastliðnum
vetri. Hann var í stjórn Máls og menningar frá stofnun
þess félags 1937. Hann var ritari Rauða kross íslands og
formaður ungliðadeilda hans. Talsvert starfaði hann og í
Alliance Frangaise. Hann var einn af forvígismönnum
kennara í launamálum, átti sæti í nefndinni, sem undirbjó
launalögin, sem samþykkt voru á síðasta alþingi, enda for-
maður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Úrslit launa-
málsins má að töluverðu leyti þakka lagni hans og ýtni í
málflutningi. Hann beitti sér jafnan mjög fyrir aukinni
menntun kennara. Hann samdi tvær ágætar barnabækur,
Sumardaga og Um loftin blá, og þýddi Kalc og Mömmu litlu
með Jóhannesi úr Kötlum. Einnig þýddi hann úr frönsku
ferðasögu vísindamannsins Charcots til Suðurheimskauts-
landa.
Auk alls þessa vann Sigurður að vísindalegum rannsókn-
um og athugunum á hæfileikum og þroska íslenzkra barna.
Hann hafði byrjað þær rannsóknir þegar á námsárum sín-
um og aldrei síðan látið þær niður falla með öllu, en síð-
ustu árin, sem hann lifði, hafði hann aukið þær mjög og
undirbúið víðtækar athuganir á því sviði.
Eins og að líkum lætur hafa ýmsir mætir menn
minnst Sigurðar Thorlaciusar skólastjóra í blöðum. Þykist
ritstjóri Menntamála ekki geta gert minningu hans sann-
legri skil en birta hér nokkra kafla úr ritgerðum þessum
og úr ræðu séra Jakobs Jónssonar við útförina, til
þess að sýna álit og dóma kunnugra og málsmetandi