Menntamál - 01.09.1945, Blaðsíða 33
MENNTAMÁL
143
lega búast viS lengri afgreiðslutíma á hljóðfærapöntunum
en tíðkaðist áður en styrjöldin skall yfir.
Vöntun á orgelum (harmonium) er nú orðin mjög til-
finnanleg hér á landi eins og eðlilegt er, þar sem engin
slík hljóðfæri munu hafa verið flutt inn síðan í árslok
1941.
Forráðamenn kirkna og skóla og fjölmargir einstakling-
ar hafa þráfaldlega beint til mín fyrirspurnum varðandi
orgel og beiðnum um útvegun á þeim við allra fyrsta
tækifæri. Því miður hefur mér fram yfir síðastliðin ára-
mót reynzt ókleift að gefa neinar vonir í þessum efnum.
Öll styrjaldarárin hef ég haft viðvarandi bréfa- og skeyta-
samband við þrjú áreiðanleg orgelfirmu, eitt í Svíþjóð,
annað í Englandi og hið þriðja í Bandaríkjunum. Öll hafa
þessi firmu talið ómögulegt að afgreiða orgelpantanir héð-
an, ýmist vegna flutningserfiðleika, útflutningsbanns, efn-
isskorts eða vegna algerðra starfa í þágu hergagnaiðnað-
ar. En þegar leið á síðastliðinn janúarmánuð, virtust horf-
ur vera orðnar vænlegri í þessum efnum í Englandi, og
um miðjan marz tjáir Estey Organ Corporation í Banda-
ríkjunum mér, að áður en langt um líði muni firmað geta
afgreitt til mín nýja tegund smáorgela, sérstaklega hent-
uga fyrir skóla og önnur ekki mjög rúmmikil húsakynni.
Ég hef nú pantað allmörg þessara smáorgela, sem hafa
4 áttundir og tvöföld hljóð, og verða þau afgreidd frá
verksmiðjunni í ágúst og september. Frá Imperal Organ &
Piano Co. London verða að forfallalausu afgreidd til mín
þó nokkur meðalstór kirkjuhljóðfæri, þau fyrstu í þessum
mánuði. Nyström orgelsmiðjan sænska tjáir mér í ný-
meðteknu símskeyti, að firmað geti nú afgreitt til mín
meðalstór kirkjuorgel með 4—5 mánaða fyrirvara.
i. júlí 1945.
Elías Bjarnason,
Laufásvegi 18, Reykjavík.