Menntamál - 01.09.1945, Síða 8

Menntamál - 01.09.1945, Síða 8
118 MENNTAMÁL þau leituðu sjálf að heimildum í bókum, — séð þau taka einstaka þætti atvinnulífsins til gagngerðrar athugunar eða skrifa sína eigin átthágafræði, myndskreyta íslands- söguna, vinna að reikningslegum línuritum eða gefa út fjölrituð bekkjablöð. Þeir kynntust því einnig, að þar var litið á barnið sem félagsveru í frjálsu umhverfi. Þá fengu hinir verðandi kennarar einnig kynningu af baráttunni fyrir heilsusamlegum viðfangsefnum svo sem ljósböðum barna og mjólkur- og lýsisgjöfum í skólunum. Frá þessum árum gætir áhrifa Sigurðar á alla skólastarfsemi í landinu, og urðu þeir nú æ fleiri, sem viðurkenndu, að vel hefði til tekizt, er honum var fengin í hendur hin ábyrgðarmikla staða. Sigurður var hæglátur maður og háttprúður í fram- komu. Að vísu var hann undir niðri ráðríkur og bjó yfir metnaði. Og oft treysti hann sjálfum sér bezt og óskaði eftir fylgi og stuðningi og mun óhætt að fullyrða, að hann vann þá flestum betur og viturlegar. Hann var óbrigðull vinur samstarfsmanna sinna, sýndi þeim trúnað og hlaut í staðinn traust og vinsældir. Hann hugsaði vísindalega. Þess vegna hófst ræða hans venjulega yfir næstu garða. Að vísu fjarlægðist hann ekki smáatvik og hin síbreyti- legu viðvik í umhverfinu. Öðru nær. Smáatvikin voru gjarnan hans íhugun og rannsóknarefni, því að hið nýja og mikla, sem hann sá í breyttum og betri heimi nýrra þjóðfélagshátta, hlaut í hans augum að byggjast á þekk- ingu og skilningi á hinum smágerðu viðvikum einstakling- anna. Gáfur hans voru þannig, að meira bar á djúphyggni en stundarskarpleika, enda var hann eigi alltaf svo við- bragðsfljótur í hugsun sem ýmsir þanlausari samstarfs- menn. Og gálauslega tók hann ekki á neinu máli, enda var honum sýndur vaxandi trúnaður á mörgum sviðum. Á síðustu missirum hóf Sigurður víðtæka rannsókn á

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.