Menntamál - 01.09.1945, Blaðsíða 21
MENNTAMÁL
131
fyrir áhrifum, illum og góðum. Bernskuna og æskuna
vantaði líka með öllu þá reynslu liðinna tíma, sem margir
hinna eldri hafa þó haft nokkurn stuðning af og því ekki
látið berast eins fyrir straumi tímans.“
„Hvernig finnst þér þessi áhrif lýsa sér?“
„Kæruleysi, ótrúmennska, sviksemi og vanmat allra
verðmæta eru ávextir þessara áhrifa."
„Þetta er næsta þungur dómur, Halldór," segi ég, „og
væri vel, að þú gerðir nánari grein fyrir því, hvernig
þetta hefur orðið.“
„Það er ekki nema sjálfsagt," svarar Halldór. „Ég
held, að ástæðurnar séu þessar í stuttu máli:
Islendingar voru ekki vanir að hafa of mikla atvinnu,
fremur hinu, að verkefni hafi vantað, jafnvel fyrir vel-
vinnandi fólk, bæði vegna skipulagsleysis, vöntunar á
tækni og vannotkunar á gögnum og gæðum landsins. Og
flestir hafa því orðið að hafa fulla gát á meðferð fengins
fjár til þess að sjá sér og sínum farborða.
Nú er það áreiðanlega einlæg ósk okkar allra, að
störfin haldi áfram að vera næg og peningarnir að sama
skapi. En í því sem öðru er þróun betri en bylting. En
stríðið skapaði sannkallaða byltingu í atvinnulífi og efna-
legri velmegun, enda hvort tveggja á óheilbrigðum grund-
velli reist, þar sem hvorki skipulagning atvinnuvega né
nokkur raunveruleg aukning á verðmætum eða notkun
landsins gæða réðu þar nokkru um, heldur utanaðkom-
andi áhrif þess ástands, sem óviðráðanlegt var af okkar
hálfu.
En staðreynd tel ég það, að hin óeðlilega eftirspurn
vinnuafls og jafnframt hinn óeðlilegi peningastraumur
hafi haft stórum lamandi áhrif á hinar fornu dygðir:
trúmennsku í orðum og athöfnum og heilbrigt mat pen-
inga og annarra verðmæta. Og sé það rétt, þá er það
fyrst og fremst uppeldismál að rétta þann hlut á ný.“
„Þú heldur, að þetta sé almennt?“