Menntamál - 01.09.1945, Blaðsíða 23

Menntamál - 01.09.1945, Blaðsíða 23
MENNTAMÁL 133 ef til vill taldir af æskulýð landsins fylgjast illa með breyttum tímum og það úrelt, sem við segjum, þá er samt reynsla kynslóðanna furðu ólygin, og sagan og lífið allt er og mun verða eilíf hringrás með undursamlega mikl- um og merkum endurtekningum.“ „Þú hefur trú á nýsköpun?“ „Nýsköpun er einkunnarorð nútímans. Við, sem kenn- arastéttina myndum, vonum áreiðanlega af heilum hug, að nýsköpun lands okkar og þjóðar megi takast með ágætum, tækni og skipulag hjálpa okkur áfram til jafnr- ar og almennrar sívaxandi velmegunar. En við megum aldrei missa sjónir á því bezta, sem var, né heldur trúna á hina beztu, sígildu eiginleika frjálsborinna manna, ef við eigum að vera þeirri köllun okkar vaxin að ala upp nýja kynslóð, sem í anda, orði og athöfnum taki hinum eldri fram.“ Minning Jóns Þórarinssonar Við, sem ritum nöfn okkar undir bréf þetta og öll höf- um stundað nám í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði, höfum orðið sammála um, að ánægjulegt væri, að skólinn eignaðist brjóstlíkan af Jóni Þórarinssyni, og væri það gjöf frá nemendum skólans. Engum mundi ljúfara að leggja sinn skerf til þessa en þeim, er sjálfir voru nem- endur Jóns, því að allir munu þeir hafa borið einn og sama hug til hans, og öllum mun þeim minning hans kær. En einnig hinum, sem verið hafa í skólanum eftir að Jón Þórarinsson fór þaðan, mundi að líkindum kært að minn- ast stofnunarinnar á þennan hátt, svo órjúfanlega sem

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.