Menntamál - 01.09.1945, Blaðsíða 40

Menntamál - 01.09.1945, Blaðsíða 40
150 MENNTAMÁL Blaðið Skutull á ísafirði birti 26. maí s.l. ýtarlegt viðtal við Þórleif Bjarnason námsstjóra um ástancl fræðslumálanna á Vesturlandi. Segir náms- stjórinn meðal annars, að mjög Jrurfi að bæta húsakost skcilanna á eftirlitssvæði hans, en það nær frá Öndverðarnesi til Gljúfurár í Vestur-Húnavatnssýslu. Þannig Jmrfi að byggja ný hús í 8 Jrorpum af 15. Farskólahúsin gömlu, sem allvíða voru reist eftir að fræðslu- lögin frá 1907 gengu í gildi, eru úr sér gcngin og óviðunandi skóla- húsnæði, þótt góð væru á sínum tíma. Farskólahéruðin eru last að 40, og telur námsstjórinn Jrað skólafyrirkomulag óhæft til frambúðar, þótt hann segist hins vegar dást að, „hvaða árangri sumir farkenn- ararnir ná í starfi sínu, þrátt fyrir hin bágbornustu skilyrði í flestu tilliti". Kvað hann Jrurfa að byggja 15—16 heimavistarskóla i um- dæminu, en 3 eru fyrir: í Reykjanesi, Arnesi og Asbyrgi í Ytri- Torfustaðahreppi í Húnavatnssýslu. Von væri um 2 heimavistarskóla á næstunni, í Mosvallahreppi og Rauðasandslireppi, og víðar væri hafin fjársöfnun til væntanlegra heimavistarskólabygginga. Heimili og skóli. í 2. og 3. hefti Jtcssa árgangs eru meðal annars Jtessar greinar: Anclinn, sem yljar (Hanties J. Magnússon), Leyfið börnunum að koma til min, niðurlag (séra Benjamín Kristjánsson), Skóli fyrir for- eldra og börn (Anna S. Snorradóttir Jtýddi), Höfum vér gengið til góðs (Valdimar V. Snævarr), Sliólasöfn (Hannes J. Magnússon), Krist- ján Sigurðsson kennari sextugur (Hannes J. Magnússon), Fermingar- börn (séra Friðrik A. Friðriksson) og Viðtal við Snorra Sigfússoii námsstjóra. Sjómanna- og gestaheimili Siglufjarðar hefur sent Menntamálum skýrslu unt starfsemi sína árið 1944. Hefur hún verið með svipuðu sniði og áður. 7404 gestir voru skráðir í gestabók, og er það 1324 fleiri en árið áður. Peningar og munir voru teknir til geymslu og sendingar, enn frentur bréfum komið á pctst og simskeyti tekin til fyrirgreiðslu. Ur bókasafni heimilisins (Jrað er um 800 bindi) voru 280 bindi lánuð í skip. ,,Allir bóka- kassarnir komu með góðum skilum, og stundum komu fleiri bækur aftur en út höfðu verið lánaðar". — Fjórir steypibaðklefar og einn kerlaugarklefi voru teknir í notkun 25. júlí og mikið notaðir, bæði af sjómönnum og landfólki, Siglfirðingum ekki síður en öðrum, ]>ví að ekkert baðliús hafði verið í bænum áður. Stúkan Framsókn starfrækir hcimilið með styrk úr bæjarsjóði

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.