Menntamál - 01.09.1945, Side 12

Menntamál - 01.09.1945, Side 12
122 MENNTAMÁL þess. Þess vegna litu kennarar á hann sem foringja í baráttu þeirra um bætt launakjör og starfsskilyrði. Sem leiðtogi á þessu sviði hefur Sigurður Thorlacius unnið glæsilega sigra, sem verða munu íslenzkri kennarastétt og starfi hennar til mikillar blessunar í langri framtíð. Og með þeim hefur hann lagt kennarastéttinni skyldur á herðar: að réttlæta með betri menntun og í frjórra starfi þær launakröfur, sem hún barðist fyrir. Því að bætt launa- kjör voru aðeins einn þáttur í því mikla umbótastarfi, sem fyrir Sigurði vakti. Hann sá lengra fram á veginn og setti baráttu sinni hærra takmark. Hans einlægasta ósk var sú að koma menntun kennara við barna- og ungl- ingaskóla í það horf, að þeir gætu verið hlutgengir meðal menntamanna þjóðarinnar. Og honum var ljóst, að þetta gat því aðeins orðið, að sterkari áhugi á uppeldisvísind- um vaknaði í landinu sjálfu, að vér færum sjálfir að fást við rannsóknir og tilraunir í uppeldismálum vorum. Áform hans í þessum málum voru margvísleg, þó að honum auðn- aðist ekki að koma þeim cllum í framkvæmd. ________ i Enda þótt opinber störf hans væru jafnan svo mikil, sem starfskraftarnir þoldu mest, fékkst Sigurður í kyrr- þey ávallt við vísindalegar athuganir og rannsóknir. Hann vissi, að hér á landi hlyti fyrr eða síðar að rísa upp rann- sóknarstofnun í uppeldisvísindum, og hann ætlaði sér að berjast fyrir því máli. Það var metnaður hans að leggja sjálfur af mörkum nokkurn skerf til slíkra rannsókna. Mér er ekki kunnugt um það, hverju hann áorkaði á þessu sviði. En því má treysta, að þar sé allt vel og trvggilega unnið. Þau voru jafnan vinnubrögð Sigurðar. Þegar sá dagur kemur, að hér rís upp rannsóknarstofnun í uppeldis- vísindum, sem vonandi verður ekki langt að bíða, þá mun hún m. a. leitast við að halda áfram að vinna úr þeim rannsóknum, sem Sigurður Thorlacius hafði með höndum.“

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.