Menntamál - 01.09.1945, Qupperneq 19

Menntamál - 01.09.1945, Qupperneq 19
MENNTAMÁL 129 Mesta vandamáliS VIÐTAL VIÐ HALLDÓR GUÐJÓNSSON (í síðasta hefti Menntamála var getið fimmtugsafmælis Halldórs Guðjónssonar, skólastjóra í Vestmannaeyjum, og hirt mynd af honum. Nokkru seinna bar saman fundum Halldórs og ritstjóra Menntamála, og notaði ritstjórinn tækifærið til þess að spjalla við Halldór um reynslu hans sem skólamanns, en Halldór hefur starfað að kennslu í 24 ár og verið skólastjóri 6 ár af þeim tíma. Fer Iiér á eftir kafli úr þessu samtali.) „Ef ég ætti að segja nokkuð um sjálfan mig í sambandi við þessi tímamót," segir Halldór, þegar talið berst að fimmtugsafmæli hans, „þá er það helzt það, að ég er sérstaklega þakklátur forsjóninni fyrir allt samstarf við kennara og nemendur.“ „Þér hefur lánazt vel stjórn á nemendum, hef ég heyrt,“ segi ég. Halldór ber ekki á móti því, en segir: „Ef ég ætti að minnast nokkurs sérstaks í því sam- bandi, þá er það sú meginregla, sem ég hef fylgt, að banna sem fæst og fyrirgefa sem mest. Forðast yfirheyrsl- ur og rekistefnur út af smámunum, sem oftast má rekja til hÍTis eðlilega barnslega breyskleika.“ „Þú hefur ekki látið pólitíska baráttu nijög til þín taka?“ „Ég hef tekið þá veikleikastefnu að halda mig sem mest utan flokkslegrar starfsemi í stjórnmálum. Sú stefna byggist á þeirri grundvallarskoðun minni, að beztu störf okkar kennara vinnum við hávaðalaust og bardagalaust með einlægri samvinnu við alla aðila: börnin, foreldr- ana og samkennara.“ Ég vík t^linu að öðru.

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.