Menntamál - 01.09.1945, Qupperneq 24

Menntamál - 01.09.1945, Qupperneq 24
134 MENNTAMÁL nafn Jóns er við skólann tengt, og víst var það hann, sem fyrstur gerði þar garðinn frægan. Við erum í engum vafa um það, að úr flokki þeirra Flensborgara, sem í skólanum hafa verið eftir að Jón Þórarinsson lét þar af stjórn, mundu þjóðkunnir ágætismenn með sérstakri ánægju hafa ritað nöfn sín undir ávarp þetta, ef þess hefði verið farið á leit við þá. En hitt varð að ráði, að leita ekki á þann hátt beint til þeirra, er eigi höfðu sjálfir verið nemendur hans. Nú er við höfum rætt þetta mál við ýmsa Flensborgara og hvarvetna við beztu undirtektir, hefur það ráðizt, að við skrifuðum þetta bréf, sem við nú leyfum okkur að senda yður og ýmsum öðrum. En marga, sem við hefðum óskað að ná til, vitum við ekki hvar nú er að finna. Væri okkur kært, ef þér vilduð hreyfa málinu við þá af kunn- ingjum yðar, sem þér teljið sennilegt, að kynnu að vilja leggja því lið. Framlög frá hverjum einum yrðu að sjálf- sögðu eftir hans eigin högum og óskum, og viljum við biðja um, að þau verði send til Egils Hallgrímssonar kennara á Bárugötu 3 í Reykjavík. Brjóstlíkanið hefur Ríkarður Jónsson listamaður lofað að gera, þegar þar að kemur. Vonum við, að nægilegt fé fáist til þess, að á sínum tíma verði unnt að steypa það í eir. Með beztu kveðjum og fyrirfram þökk fyrir liðsinni í málinu, Aðalbjög Sigurðardóttir frú, kennari, Asgeir G. Stefánsson fram- kvœmdastjóri, Asmundur Gestsson kennari, Björn H. Jónsson skóla- stjóri, Egill Hallgrimsson kennari, Einar Arnórsson dr. jur., fyr ráð- herra og hcestaréttardómari, Gunnlaugur Kristmundsson sandgrccðslu- stjóri, Halldór Hansen dr. med., Knud Zimsen fyr borgarsljóri, Lárus Bjarnason fyi skólastjóri, Olafur Böðvarsson sparisjóðsstjóri, Ólafur Proppé konsúll, framkvœmdastjóri, Sigurgeir Gislason fyr sparisjóðs- gjaldkeri, Sncebjörn Jónsson bóksali, Þórarinn Egilson framkvcemda,- stjóri.

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.