Menntamál - 01.09.1945, Síða 29

Menntamál - 01.09.1945, Síða 29
MENNTAMÁL 139 hæfari til þess að forðast múghugsunina og múgæsing- arnar. Að hvað mildu leyti skólunum tekst þetta, læt ég ósagt, en þeim tekst það sjálfsagt misjafnlega, en þetta þarf að verða og á að vera höfuðhlutverk þeirra.“ Starfsemi manna eins og Þorsteins M. Jónssonar miðar að þessu marki. Ólafur Þ. Kristjánsson. Bækur sendar Menntamálum Fiskimálanefnd. Skýrsla tíu ára 1935—19JJ. Eftir Arnór Sigurjónsson, 182 bls. Útg.: Fiskimálanefnd. Nafn bókar- innar segir til um efni hennar, og þótt hún fjalli um hluti, sem ekki eru sérgrein Menntamála, þykist ritstjóri þeirra þó mega fullyrða, að hún sé fróðleg bók og skýri frá merki- legum tilraunum, sem gerðar hafa verið til þess að afla aðalútflutningsvöru okkar, sjávarafurðunum, markaðar. Þeir, sem vilja eitthvað vita um atvinnulíf eða atvinnu- sögu þjóðarinnar, geta ekki látið hjá líða að lesa þessa bók. Mætti í því sambandi t. d. benda á kaflann um hrað- frystingu fiskjar og eflingu þeirrar atvinnugreinar. Hitt þarf varla að taka fram, að frásögnin er öll skýr og skilmerkileg hjá Arnóri og bókin miklu læsilegri en ætla mætti að óreyndu um slíkt rit.

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.