Menntamál - 01.09.1945, Síða 34

Menntamál - 01.09.1945, Síða 34
144 MENNTAMÁL Fréttir og félagsmál Jóhannes Ólafsson, kennari í Laxárdal í Dalasýslu, varð sextugur 11. september s.l. (f. 1885). Hann gekk á unglingaskóla í Búðardal þegar liann var um tvítugt. Hann starfaði að kennslu fram til 1913, og síðan aftur látlaust frá 1928, lengst af í Dalasýslu. Pálmi Kristjánsson, kennari í Saurbæjarhrepp í Eyjafirði, varð sextugur fyrir skömmu (f. 16. sept. 1885). Hann tók gagnfræðaróf á Akureyri 1916 og gerðist þá þegar kennari í Saurbæjarhreppi. Júlíus Magnússon, sundkennari í Reykjavík, varð fimmtugur 16. júlí s.l. Hann tók próf frá bændaskólanum á Hvanneyri 1916 og frá íþróttaskólanum í Ollerup 1921. Hann sundaði nám í lýðháskólanum á Voss í Noregi 1924—25 og við Miillers-institutet í Kaumannahöfn 1925—26. 1931 dvaldi hann 3 mánuði við nám í Deutsche Hochschule fúr Leibes- úliungen í Þýzkalandi. Sundkennarapróf tók hann við Statens Gymna- stik Institut í Kaupmannahöfn 1933 og hefur verið sundkennari í Reykjavík síðan, en áður hafði hann stundað íþróttakennslu á Akra- nesi, Seyðisfirði og í Reykjavík. Mikkjal á Ryggi, færeyski skólamaðurinn og skáldið, sem ýrnsir íslenzkir kennarar munu kannast við, varð 65 ára 17. okt. 1944 og lét af kennslu um síðustu áramót. Starfsþrek hans er þó enn óskert og mun hann hafa í hyggju að gefa sig óskiptan að bókmenntastörfum. Dr. Símon Jóh. Ágústsson hefur verið skipaður prófessor í heimspeki við Háskóla íslands í stað Agústs H. Bjarnasonar, er lætur af störfum vegna aldurs. Símon er kunnur af ritum sínum og erindum um uppeldismál og sálarfræði allt frá ])ví að hann ávann sér doktorsnafnbót við háskólann í París árið 1936 fyrir rit um uppeldiskenningar Georgs Kerschensteiners. Síðasta bók hans, Mannþekking, kom út á yfirstandandi ári. Jarðarför Sigurðar Thorlaciusar skólastjóra fór fram frá dómkirkjunni 24. ágúst s.l. Menntamálaráðherra, kennarar úr Austurbæjarskólanum og stjórn S.Í.B. báru kistuna úr

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.