Menntamál - 01.12.1948, Blaðsíða 21

Menntamál - 01.12.1948, Blaðsíða 21
MENNTAMÁL 127 aðeins með því að lifa í félagsskap, þar sem árekstrar milli einstaklinga verða að lúta í lægra haldi fyrir sameigin- legum hagsmunum. Það er ekki ólíklegt, að víðtæk stofnsetning leikskóla, velbúinna að hvers konar leiktækjum og í umsjón vel menntaðs starfsliðs sé sú einstök þjóðfélagsumbót, sem veitir mestan „yndisarð“ miðað við tilkostnað. Áhrif félagsskaparins. Barnið elst upp við margháttaðan félagsskap. Á ung- lingsárunum kemst fastari skipan á félagsskapinn en í bernsku, þegar mest gætir lauslegra leikflokka á götum úti. Hvert félag, hvort sem það er skátafélag, knattspyrnu- félag, trúarfélag eða óaldarflokkur, gerir tilteknar kröfur um hegðun „félagsmanna". Ef til vill á það sér sérstakt tungumál. Það mál, sem nemendur tala í kennslustund- um, er að jafnaði frábrugðið því máli, sem þeir tala á leik- vanginum, og heima hjá sér tala þeir enn annað mál. Kenn- arinn mundi verða forviða, ef hann heyrði „heimamálið“ og móðirin æf yfir því hrognamáli, sem á götunni er talað. Mismunandi kröfur um framkomu heyra til mismunandi aðstæðum. Því er oft haldið fram um uppeldi í heimavistarskól- um, að það geri nemendahópinn að ódeililegri félagsheild. Margan varnaglann þyrfti að slá til þess, að þetta gæti talizt óyggjandi sannleikur. Og enginn heimavistarskóli getur gert kröfu til þess að vera nemendum sínum hið sama og gott heimili. En hitt er ótvíræður sannleikur, að í átök- unum um þau áhrif, sem nemendur verða fyrir utan vé- banda skólans, standa heimavistarskólar miklu betur að vígi en aðrir skólar. Og vissulega er dvöl í heimavistar- skóla oft ákjósanlegasta lausnin, þegar um er að ræða lækn- ingu eða leiðréttingu uppeldisvandkvæða. Að hinu leytinu getur það haft holl og örvandi áhrif á börn og unglinga að kynnast mörgum, mismunandi félags-

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.