Menntamál - 01.12.1948, Síða 40

Menntamál - 01.12.1948, Síða 40
146 MENNTAMÁL til endurgjalds. Þá hefur Pálmi átt sæti á flestum kennara- þingum, síðan fulltrúaþing hófust, og hann hefur verið full- trúi stéttar sinnar í stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. — í milliþinganefndinni, sem samdi frumvarpið til fræðslulaga, sem samþykkt var á Alþingi 1986, átti Pálmi sæti ásamt Snorra Sigfússyni og Sigurði heitnum Thor- lacius. Hér hafa verið rakin stuttlega helztu störf, sem Pálmi hefur unnið í félagsmálum. En þá er ótalið meginið af verkum hans, þau verkin, sem unnin hafa verið í þágu nemenda og kennara þess skóla, sem hefur átt því láni að fagna að njóta starfskrafta hans um aldarfjórðungs skeið. Pálmi er tvímælalaust meðal fremstu kennara, en auk þess er hann gæddur óvenjulega mikilli skipulagningar- gáfu. Hefur sú glöggskyggni oft komið skólanum í góðar þarfir, því að þar hefur jafnan verið þröngt um bekki. Geta nemendur skólans og jafnvel kennarar litla grein gert sér fyrir því, hvílíku óhagræði hann hefur oft bægt frá þeim með útsjónarsemi sinni og þrautseigju að leita ávallt hinnar hagkvæmustu lausnar. Pálmi er mikið prúðmenni í framkomu eins og margir hinna beztu Eyfirðinga. Hef ég oft dáðst að þeirri sönnu menningu í umgengnisháttum, sem landlæg virðist í því byggðarlagi. En hann heldur fast á sínu máli, þó að hann geri það frekjulaust. Og fáa menn þekki ég, sem síður láta hvikular tilfinningar villa sér sýn. Heilbrigð skynsemi, drengskapur og góðvild eru þær stjörnur, sem hann hefur fyrir stafni og stýrir eftir sínu fleyi. Samstarfsmönnum hans þykir gott að sækja til hans ráð, og þeir hlýða af gaumgæfni á tillögur hans. Þeir vita, að þær eru gagn- hugsaðar. Þeir vita og, að hann muni á engu níðast því, er honum er til trúað. Pálmi er kvæntur Elínu Sigurðardóttur (bóksala Sig- urðssonar á Akureyri) og eiga þau ánægjulegt heimili og tvær mannvænlegar dætur. Á. H.

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.