Menntamál - 01.12.1956, Page 36
162
MENNTAMAL
1. í kennaraskólum, — þar sem kennaraefnum yrði
markvisst kennt að beita hinum frjálsu skólastörfum.
2. Á kennaranámskeiðum um land allt, — þar sem starf-
andi kennurum eldri og yngri, yrðu boðuð hin nýju sjónar- *
mið, og reynt að koma þeim í snertingu við starfið, eftir
því sem unnt er á skömmum tíma.
3. í blöðum og í málgöngum kennara, — og jafnvel víð-
ar, — þar sem ýmiss konar kynningar og hvatningarstarf-
semi færi fram.
Jafnframt fræðslustarfseminni þarf svo að vinna ötul-
lega að margs konar útgáfustörfum og breytingum á sum-
um kennslubókunum, til samræmis við hin nýju skólastörf.
Segja má, að þessi útgáfa sé lítillega hafin, og á ég þá við
hin fáu undirlagskort, áttahagafræðimyndirnar og mynda-
blöðin varðandi dýrafræði og sögu. Þetta er á réttri leið.
En nú þarf að herða sóknina stórlega og gefa út hefti með ^
einföldum teikningum varðandi ýmsar námsgreinar. Má
þar hafa til hliðsjónar bæði hin dönsku Axel Nielsen-hefti
og ýmis önnur, sænsk og norsk, sem auðvelt er að fá og
margir íslenzkir kennarar munu eiga. Fleiri undirlagskort
þarf og að sjálfsögðu að prenta, myndaflokka, t. d. af
skáldum og helztu merkismönnum, sögustöðum, atvinnu-
lífi, íslenzkri náttúru o. fl. o. fl. En sú útgáfa, sem ekki
skiptir minnstu máli fyrir hin sjálfstæðu skólastörf, og
vinna þarf strax að, er ,,skólalexíkon“. Nágrannaþjóðirn-
ar hafa fyrir löngu gefið út slíkar alfræðibækur handa
skólum sínum, öllu sjálfstæðu starfi til ómetanlegrar
blessunar. Ég nefndi fyrr nýjustu bók Norðmanna í þeim
efnum, „Skattkista", fjögurra binda ágætisverk. Sögðu
mér margir skólamenn, að hún væri nemendum ómetanleg
hjálp í hinu frjálsa starfi.
Mér þykir miklsvert að mega fullyrða hér að lokum, að
við eigum vísa aðstoð ágætra manna og fyrirtækja í ná-
grannalöndum okkar, þegar við sýnum þá sjálfsögðu
J