Menntamál - 01.12.1956, Blaðsíða 60
186
MENNTAMÁL
Yfirstjórn stofnunarinnar er í höndum sérfræðinga-
ráðs, sem í eiga sæti meðal annarra prófessorar í
uppeldisfræði, sálarfræði, tauga- og geðsjúkdómum, sér-
fræðingur í líffræðilegri staðtölufræði og sérmenntaður
skólalæknir auk framkvæmdarstjóra og deildarstjóra, er
sjá um daglegan rekstur. Á skipun ráðsins að tryggja, að
unnið sé á víðtækum vísindalegum grundvelli.
Aðstoðarráð með um það bil 35 fulltrúum frá kennara-
félögum og öðrum uppeldismálasamtökum og stofnunum er
tengt stofnuninni og starfar sem nokkurs konar tengiliður
milli vísindamannanna og hins daglega starfs uppaland-
ans. Á það að tryggja alhliða meðferð verkefna stofn-
unarinnar auk þess kynningarstarfs, — bæði út á við og
inn á við, sem svo fjölmennur fulltrúahópur leysir af hendi.
Stofnunin starfar í 5 deildum með nánu sambandi sín
á milli, sérstaklega þegar um sameiginleg verkefni er að
ræða. Sú fyrsta annast kennslufræðilegar rannsóknir,
önnur sálar- og uppeldisfræðilegar undirstöðurannsókn-
ir, þriðja próf hvers konar, fjórða tilraunir utan stofn-
unarinnar og sú fimmta staðtölulega útreikninga.
Verkefni stofnunarinnar eru eins og gefur að skilja
afar fjölþætt, og er ekki hægt í stuttu yfirliti að gefa
nokkra raunverulega hugmynd um eðli þeirra, en ég vil
þó nefna nokkur dæmi.
1. Rannsóknir á þroska ocj námserfiðleikum hjá byrj-
endum með sérstakri hliðsjón af framförum í lestri.
Þeim börnum, sem sérkennslu njóta vegna lestrarörð-
ugleika, fer sífjölgandi í Danmörku, en reynda skólamenn
greinir á um orsakirnar.
Sumir telja, að losaralegra kennsluform, minnkandi agi
og f jölgun áhugamála, er ekki snerta lestrarnámið beinlín-
is (bíó, sjónvarp o. fl.), eigi mikinn þátt í, að börnin leggi
sig ekki eins mikið fram við lestrarnámið og áður.
Aðrir telja aftur á móti, að mikill fjöldi barna sé ekki