Menntamál - 01.12.1956, Page 79
MENNTAMÁL
205
FUNDIR OG ÁLYKTANIR.
Frá sambandsþingi.
Fjórtánda þing Sambands íslenzkra barnakennara var háð í Mela-
skólanum dagana 7.-9. júní s. 1. Þingið sátu kjörnir fulltrúar víðs veg-
ar að af landinu.
Aðalframsöguerindi fluttu:
Aðalsteinn Eiríksson: Um skólahús, aðbúnað og fjármál skóla.
Broddi Jóhannesson: Hvað er efst á baugi í skólamálum frænd-
þjóðanna?
Ólafur Gunnarsson, sálfræðingur: Um skólasálfræði. Máli sínu til
skýringar sýndi hann kvikmynd.
Þingið samþykkti all margar tillögur og ályktanir varðandi skóla-
mál, m. a. þessar:
Fulltrúaþingið ítrekar fyrri áskoranir kennara lil kennslumála-
ráðuneytis og ríkisstjórnar um að hefjast tafarlaust handa um byggingu
nýs kennaraskóla. Enn fremur verði sem allra fyrst reistur fyrirhug-
aður tilrauna- og æfingaskóli Kennaraskólans.
Fulltrúaþingið skorar á menntamálaráðuneytið að beita sér fyrir
eftirfárandi:
a) Framlag ríkis til skólabygginga, húsbúnaðar og kennslutækja Iræði
til bóklegrar og verklegrar kennslu verði stóraukið.
b) Lögð verði áherzla á að 1 ji'ika sent fyrst skólabyggingum, sem í
smíðum eru eða ófullgerðar.
<) Fjárveiting til hverrar nýrrar byggingar verði ákveðin svo rífleg,
að unnt sé að vinna viðstöðulaust og ljúka verkinu á sem skemmst-
um tíma.
d) Fjárveiting Alþingis til skólabygginga verði byggð á fastri áætl-
un og framkvæmd jafnan hafin fyrst þar, sem þörfin er brýnust.
e) Skipaður verði sérstakur fulltrúi, er hafi með höndum teikningar
nýrra skólahúsa, eftirlit með byggingum og úttekt þeitra.
f) Áherzla verði lögð á, að fámenn skólahverfi séu sameinuð um
skólabyggingar, svo sem ástæður leyfa.
g) Reglugerð verði sett um, hvaða áhöld og kennslutæki skuli vera í
hverjum barna- og unglingaskóla.
h) Séð verði um, að jafnan sé fyrir hendi liandbók handa kennurum,
þar sem skráðar séu starfsreglur þeirra ásamt lögum og reglugerð-
um um skipan skólamála.
Þingið beinir Jjeim tilmælum lil ríkisstjórnarinnar, að hún vinni að
því, að ísland gerist aðili að menningar- og vísindastofnun S. Þ.