Menntamál - 01.08.1959, Side 48
142 MENNTAMÁL
verið einráðir um gerðir stóla, og hafa þeir löngum fylgt
hefðbundnu formi borðstofustólsins.
Það er eigi fyrr en nú á seinustu árum, að fræðimenn
og húsgagnasmiðir fara að gefa mannslíkamanum gaum
í þeim tilgangi að smíða stóla við hæfi hans. Þessi
viðleitni verður til vegna þarfar mannslíkamans á sæti,
sem veitir honum stuðning, heldur honum í hinni eðli-
legustu reisn, veitir honum þó frelsi eða svigrúm til hreyf-
inga, heftir eigi blóðrás o. s. frv.
Þessi þörf á hentugu sæti stafar af löngum setum við
vélar, við skrifborð, við ritvélaborð, við stjórn flugvéla
eða ökutækja o. m. fl. Tökum sem dæmi flugmanninn, sem
tímum saman verður að sitja í sæti sínu við stjórn vélar.
Líkama hans verður að halda frá þreytu sem lengst, forða
honum frá „náladofa" eða öðrum þeim truflandi áhrifum,
sem slæmt sæti veldur. Vegna þessa skipuðu Bandaríkja-
menn nefnd í byrjun síðustu heimsstyrjaldar til þess að
rannsaka sæti og finna hina hentugustu gerð sæta fvrir
flugmenn.
Niðurstöður þessarar nefndar hafa svo haft áhrif á
gerðir stóla til hinna ýmsu nota. Þessara áhrifa gætti
mjög á skólahúsgagnasýningu, sem ég sá í New York
1946. Fræðslumálastjórn borgarinnar gekkst fyrir þessari
sýningu í sambandi við kennarafund, sem þá var haldinn
þar í borg. Til þess að fullkomna þessar athuganir og
hagnýta þær við stóla og borð, sem nota skyldi í skólum,
var framkvæmd rannsókn á vegum U. S. Department of
Health, Education and Welfare, Office of Education, og
var unnið úr mælingum rúmlega 300 þús. barna og ungl-
inga á aldrinum 4—17 ára. Niðurstöður nefndra rann-
sókna voru svo birtar í júní 1953 í riti, sem nefnist:
Basic body measurements of school age children.
Hér í Evrópu eru kunnar ýmsar athuganir á hentug-
ustu gerð skólahúsgagna, t. d. mældu Þjóðverjar 15000
skólabörn, og má lesa niðurstöður þeirra rannsókna í