Menntamál - 01.08.1959, Page 51
MENNTAMÁL
145
ekki á neðanverð læri, þegar iljar hvíla jafnt á
gólfi.
b) Dýpt setu hæfir líkamshæð nemanda, ef setubrún
er vel laus við hnésbót, þegar nemandi situr alveg
uppi í setinu með bak að lendabrík.
c) Seta skal hallast aftur, svo að sitjandi renni síður
fram á við (Allt að 2.5 cm á 35 cm).
d) Aftan við setu skulu engir rimlar eða slár hindra
hreyfingu rassins aftur fyrir setuna.
e) Bakbrík eða bakbríkur skulu veita aðhald um
lendar (lendabrík) og um útbeygju brjóstliða
(bakbrík). Brík eða bríkur skulu vera eins breið-
ar og unnt er og kúptar.
f) Vegna misjafnrar líkamshæðar nemenda skyldu
stólar vera af 5 hæðum (sjá töflu) eða þannig
útbúnir, að þá megi aðlaga líkamshæð nemand-
ans (Stillanlegir, megi hækka þá eða lækka).
g) Horn milli setu og lendabríkur skal vera um 74°,
en milli setu og bakbríkur um 110° (Sjá teikn-
ingu, mynd 12).
2. Borð:
a) Hæð borðs skal vera 2 cm hærra en olnbogi nem-
anda, þegar hann situr í stól, sem hæfir honum.
Nemandi á hvorki að þurfa að lyfta öxlum né lúta
áfram, þótt hann færi framhandlegg láréttan inn
á borðplötuna.
b) Borðplatan skal halla að sætinu um 2 cm á 50 cm
breiðri plötu.
c) Stærð borðplötu tveggja-manna-borðs skal vera
50x120 cm (æskilegt, að borð tveggja manna
væri 50x140 cm), en eins-manns-borð 50x60
(æskilegt 50x?0 cm). Rými inn undir borði milli
setu og borðplötu skal ekki takmarkast af borð-
hillu, heldur vera svo rúmt sem unnt er. (Frekar