Menntamál - 01.08.1959, Síða 52
146 MENNTAMÁL
engin hilla eða lítil heldur en þröngt rými fyrir
fæturna).
Hæð húsgagna í skólastofu skal miða við hvern ein-
stakling, en eigi miðast við heildina og aðlagast samkvæmt
því (Annaðhvort stillanleg eða fleiri stærðir).
Skólastjórar, kennarar og húsverðir skulu hafa ríkt í
huga, að líkamsstærð nemenda eykst yfir veturinn, og því
þarf minnst tvisvar á vetri að athuga stól og borð hvers
nemanda.
í barnaskólum, sem eigi hafa húsgögn, sem hægt er að
hækka og lækka, skal skólinn eiga stóla og borð af 3
hæðum minnst og 20% fleiri en fjöldi nemenda er.
Venjulega þurfa flest húsgögnin að vera af miðlungs-
hæð (50—60% allra húsgagnanna).
Til frekari leiðbeininga setur nefndin fram eftirfarandi
töflu, sem sýnir hin ýmsu mál stóla og borða, deilt niður
í 5 stærðarflokka. Mál eru í cm.
/. fl. II. fl. III. fl. IV. fl. V. fl.
Hæð setu 28.0 35.0 38.0 40.5 43.5
Hæð lendabríkur 11.0 13.0 15.0 17.0 17.5
Hæð bakbríkur 35.0 37.5 40.5 43.5 46.5
Hæð borðplötu frá setu 20.0 21.0 23.0 24.5 26.5
í desember 1952 hefðu, samkvæmt mælingum allra nem-
enda Miðbæjarskólans í Reykjavík, 4.2% nemendanna
þurft nr. 1, 25.4% nr. 2, 22.5% nr. 3, 32.2% nr. 4 og
15.7% nr. 5.
Menntamálaráðuneytið tjáði fræðslumálastjóra í bréfi,
rituðu í júní 1955, að ráðuneytið væri samþykkt niður-
stöðum nefndarinnar, og hvatti til þess, að forráðamenn
skóla, sem þurfa að láta smíða skólahúsgögn, fylgi teikn-
ingum þeim, er fylgdu nefndarálitinu.
Mér þykir rétt að skýra nánar helztu atriðin í bygg-
ingu stóls og afstöðu borðs til sætis.