Menntamál - 01.08.1959, Síða 106
200
MENNTAMÁL
lokinni framsögn, eru þá oft hinar gagnlegustu fyrir báða
aðila.
Foreldrafélögin gangast einnig oft fyrir eða eiga aðild
að fylkisfundum eða jafnvel landsfundum til að ræða mál,
sem almennt vekja áhuga. Eftirtalin málefni gætu t. d.
verið viðfangsefni slíkra ráðstefna: Áhrif sjónvarps á
skólabarnið, hlutverk sjónvarps í skólastarfi, forskóla-
aldurinn eða geðshræringar barna. Þjónar þetta m. a.
þeim tilgangi að beina athygli að málefni, sem annars
kynni að vera vanrækt að hugleiða.
2. Námsiðkun. Aðalstarf samtakanna er að veita for-
eldrum, er þess óska, tækifæri til að fræðast um börn sín
og skólann. Skipulagðir fræðsluþættir, fyrirlestrar, kvik-
myndasýningar og umræður fara fram í þessu skyni á
reglubundnum fundum félaganna, sem haldnir eru mán-
aðarlega.
Til námsiðkananna eru valdar ýmsar greinar, og er ein-
hverjum félagsmanni falin umsjón með hverri grein.
Stjórnar hann undirbúningi þess fundar, er um hana skal
fjalla. Nökkrar þessara greina eru: Fræðsla fyrir for-
eldra, er stuðlar að margs konar aukinni þekkingu þeirra
á barninu, — barnasálarfræði, félagsfræði, með sérstöku
tilliti til þess samfélags, er barnið vex upp og þroskast í,
og fræðsla félagsmönnum til undirbúnings fyrir ýmis fé-
lagsstörf.
3. FramJcvæmdir. Foreldrafélögin ráðast gjarnan í
framkvæmdir, er gott af leiðir, innan sinna héraða. Fram-
lag til byggingar tómstundaheimilis eða skautahallar,
skipulagning heilsufræðsluviku eða kvikmyndasýninga
fyrir börn gæti t. d. verið meðal framkvæmda samtak-
anna.
Sikpulagning samtakanna er mjög fullkomin í öllum
fylkjum Kanada. Frumheildin er félag hvers skólahverfis.