Menntamál - 01.08.1959, Síða 108
202
MENNTAMÁL
Þá gefur landssambandið einnig út tímarit, hliðstætt
því fyrrnefnda að efni, en það gegnir auk þess því hlut-
verki að vera formlegt málgagn heildarsamtaka foreldra-
félaga í landinu.
Auk þessara tímarita dreifa hin ýmsu sambönd for-
eldrafélaganna miklu af prentuðum ritlingum til leiðbein-
inga og upplýsinga handa einstaklingum og félögum inn-
an samtakanna.
Félagsfundur. Eins og að framan var sagt, heldur hvert
foreldrafélag fundi mánaðarlega á skólaárinu, eða a. m. k.
frá októbermánuði til maímánaðar ár hvert. Slíkur fund-
ur gæti farið fram eitthvað á þessa leið: Fundarmenn
eru 60—75. Fundurinn hefst kl. 8 síðdegis með fastastörf-
um, þar á meðal eru fluttar stuttar skýrslur, greint frá
næstu áformum og lesin bréf, er borizt hafa. Þess er vand-
lega gætt, að þessi störf dragist ekki á langinn og þreyti
fundargesti ekki um of. Er þeim lokið á einni klukku-
stund. Hefst þá sýning á kvikmynd, er gæti t. d. fjallað
um feimni barna. Fyrst er myndin kynnt með stuttu máli,
en að sýningu hennar lokinni, skiptast fundargestir í
nokkra smáhópa, 9 eða 10 manns í hverjum hópi, og ræða
efni myndarinnar. Er helztu niðurstöður þeirra umræðna
hafa verið dregnar saman, hefst spurningatími. Gestur
sá, er fenginn hefur verið á fundinn til að svara spurn-
ingum, mundi í þessu tilfelli vera annað hvort læknir eða
sálfræðingur. Þessum þætti lýkur um kl. 10,30. Eru þá
bornar fram veitingar, kaffi og brauð, er nokkrar félags-
konur annast hverju sinni. Fundinum lýkur kl. 11 eða þar
um bil.
Fjármál. Helzti tekjustofninn er árgjöld félagsmanna.
Þá fær hvert fylkissamband foreldrafélaga til ráðstöfun-
ar nokkurt fjárframlag árlega frá fræðslumálastjórn síns
fylkis. Og enn fremur ber hið opinbera oft nokkurn kostn-