Menntamál - 01.08.1959, Síða 121
MENNTAMÁL
215
Reykjavík hafði mestan veg og vanda af því að undirbúa
ferð mína, og leysti hann það verk af höndum með frá-
bærri alúð og ljúfmennsku. En um hitt get ég ekki þagað,
að meiri vafningar og óskemmtilegri eru við það að fá
vegabréfsáritun til Bandaríkjanna en annarra landa, sem
ég hef heimsótt.
Þegar vestur kom, tóku sérstakir fulltrúar í mennta-
málaráðuneyti Bandaríkjanna við hinum erlendu gestum,
og skiptu þeir með sér verkum eftir erindum gestanna,
einn sá t. d. um barnaskólanámið, annar um nám á gagn-
fræðastigi, þriðji um húsmæðrafræðslu o. s. frv. Miss
Anna C. Bolton sá um ferðir mínar, eftir að vestur kom,
og á það við hana og alla aðra fulltrúa, er ég hafði spurnir
af og líkum störfum gegndu, að hún sparaði enga fyrir-
höfn til að greiða sem bezt fyrir hinum erlendu náms-
mönnum. En hitt var ekki minna vert, að í hverjum skóla
var mér jafnan tekið á þessa leið: „Nefnið, hverju þér
viljið kynnast, og þér eigið kost á því.“ Við þetta bættist
svo örlát gestrisni einstaklinga og stofnana meiri og al-
mennari en ég hef kynnzt annars staðar. Yrði það of
langt mál að geta allra þeirra, er stuðluðu að því að mér
nýttist ferðalagið sem bezt, og væri það þó ekki óviðeig-
andi í þessu riti, því að fráleitt er að skoða ferðir þessar
sem einkamál þeirra, er fara, og þær eru því aðeins rétt-
lætanlegar, að þær komi kennslumálunum að gagni, enda
styrktar af almannafé og yrðu ekki farnar án orlofs.
Hinn nákvæmi undirbúningur af hálfu upplýsingaþjón-
ustu og menntamálaráðuneytis Bandaríkjanna er mjög
mikils virði, en að sjálfsögðu leysir það styrkþegann ekki
frá þeim vanda að hugsa einnig sitt ráð sjálfur. Áður en
ég byrjaði ferð mína, gerði ég mér sæmilega ljósa grein
fyrir helztu viðfangsefnum, er ég hugðist taka til athug-
unar, er vestur kæmi. Aðalviðfangsefni mitt var kennara-
menntunin, einkum með hliðsjón af:
I. Uppeldis- og sálarfræði. a) Námsskrá, námstími,