Menntamál - 01.08.1959, Síða 140
234
MENNTAMÁL
Á árunum fyrir heimsstyrjöldina síðari einangruðust
þýzkir kennarar mjög, og ollu m. a. hömlur þær, er lagðar
voru á frjálsar ferðir manna úr landi. Atburðir heims-
styrjaldarinnar uku enn á einangrun kennara, þótt með
öðum hætti væri, og afskipti hernámsliðsins af fræðslu-
málunum munu ekki ætíð hafa glætt gagnkvæman skiln-
ing, og eru þetta orð ritstjórans, en ekki Rowolds. Eitt
fyrsta og þýðingarmesta skrefið til að rjúfa einangrun
þessa var stigið, er danskir og þýzkir kennarar komu
saman á öndverðu ári 1949 og ræddu opinskátt um hin
margvíslegu vandamál kennara. Fundur þessi gaf svo
góða raun, að ákveðið var að halda áfram í sama anda
og auka starfið og skapa skilyrði til fjölmennari þinga
og fjölbreyttara starfs. Var hafizt handa um smíði mynd-
arlegs húss, þar sem gestir geta dvalið og unnið. Mark-
mið starfsins er að sameina góðviljaða menn án hlið-
sjónar af trú, kynþætti, þjóðerni, stjórnmálaskoðun eða
þjóðfélagsstöðu til þess að ræða viðfangsefni líðandi
stundar á sviði stjórnmála og menningarmála. Starfs-
hættir auðkennast einkum af opinskáum samræðum
manns við mann, og stefnt er að því að bæta gagnkvæman
skilning manna, stétta og þjóða og efla bróðurhug og frið.
Fjölmargir ágætir fræðimenn hafa flutt erindi á þing-
um í Sonnenberg, þar sem fjallað hefur verið um flest
meginviðfangsefni uppeldismála og æskulýðsstarfs, félags-
mála og stjórnmála.
Þá hafa samtökin gefið út ýmis rit, m. a. Sonnenberg
Briefe zur Völkerverstandigung, flokk bæklinga Zivischen
gestern und morgen, þar sem rædd eru ýmis höfuðvanda-
mál, Sonnenberg Nachrichten, ýmsar bækur o. fl.
Kennarar úr öllum álfum hafa sótt þingin í Sonnen-
berg, og í ýmsum löndum hefur verið komið á sérstökum
deildum þessara samtaka.
Ýmsir forystumenn í alþjóðasamtökum kennara eiga
sæti í heiðursstjórn Sonnenberg-samtakanna, meðal þeirra