Menntamál - 01.08.1960, Page 7

Menntamál - 01.08.1960, Page 7
MENNTAMÁL 101 ið sín, ef nemandinn gleymir að anda að sér nægu lofti til að knýja vél raddbandanna. Fræðsla um þetta er auðvitað fyrst og fremst hlutverk móðurmálskennara á öllum skólastigum, en auk þess gætu heilsufræði- og jafnvel eðlisfræðikennarar aukið skilning nemandans á myndun og beitingu mannlegrar raddar. Og þá er vel, ef slík nauðsynleg fræðsla kemur nemandanum úr sem flestum áttum. Hvað er þá hægt að gera til úrbóta? Fyrst og fremst þarf öll kennarastéttin að beita allri ýtni sinni og lagni til þess að temja nemendum að svara með heilum setningum og í þeirri rómhæð, að allir í stofunni megi mál nema. Aulca þarf veg hins talaða orðs. Samfelld munnleg frá- sögn í heyranda hljóði verði aukin í þeim greinum, sem því verður við komið. Haga mætti slíkri endursögn þann veg, að nemandi kynnti sér ákveðinn kafla eða sögu, skrif- aði á miða nöfn, ártöl og helztu atriðisorð, en reyndi síðan að endursegja með stuðningi þess, er hann hafði skrifað. Þá skal á það bent, að þekkt ráð til raddþjálfunar ungl- inga er tallcór. Hann hjálpar nemendum yfir þann hjall- ann, sem örðugastur er — hömlur feimninnar. Þeir, sem kenna söng, þekkja, hve erfitt er að fá venjulegan nem- anda til að syngja einsöng. 1 kór fer feimnin af og styrk- ur raddarinnar nýtur sín. Sama gerist í talkór. Þar er hægt að temja nemendum að beita rödd sinni með hæfi- legum styrk, og kennara gefst ágætt tækifæri til að kenna reglur um réttan andardrátt. Viðfangsefnið verður að vera ljóð, sem þátttakendur kunna utanbókar, svo að lát- ið verði að sameiginlegri stjórn. Bezta aldursskeið fyrir þessa kennslu reyndist mér löngum um fermingaraldur, en miklu erfiðara að ná árangri síðar. Vandaður lestur ljóða, sem lærð hafa verið utanbókar eða nemandi hefur að minnsta kosti kynnt sér rækilega, er jafnan prýðilegt viðfangsefni til raddþjálfunar. Gott er að láta nemendur lesa upp ritgerðir sínar, eftir

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.