Menntamál - 01.08.1960, Side 8

Menntamál - 01.08.1960, Side 8
102 MENNTAMAL því sem tími vinnst til, enda gleymist þá aldrei að leggja megináherzlu á skýran flutning hins talaða orðs. Allt þetta hlýtur að taka nokkurn tíma, en ekki er mér grunlaust um, að eitthvað mætti draga úr tíma þeim, sem nú er varið til stafsetningar, ef stórfellt átak væri gert til að bæta fram- burð nemenda. Þá er vafalaust nauðsynlegt, að góð meðferð talaðs orðs njóti sín meir en nú er títt við öll próf skólanna, svo að nemendum og kennurum megi ljóst vera, að til nokkurs sé að vinna að leggja sig fram á þessu sviði eigi síður en öðrum. Þá mundi ég telja æskilegt að í Kennaraskóla ís- lans og B.A.-deild Háskólans væri öllum kennaraefnum kennd undirstöðuatriði raddþjáHunar líkt og títt er um leikara og söngvara. Það er von mín, að íslenzkri kennarastétt, sem tókst á 15—20 árum að kveða niður draug flámælisins, takist í næsta áfanga að kveða niður óskýrleika og flumburmæli íslenzkrar skólaæsku. Takmarkið er skýrmælt og vel talandi þjóð. Sveinbjörn Sigurjónsson.

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.