Menntamál - 01.08.1960, Side 9

Menntamál - 01.08.1960, Side 9
MENNTAMAL 103 JÓNAS GUÐJÓNSSON: Skólagangan hefst. Erindi flutt á fundi foreldra sjö ára barna í Laugames- skólanum 12. nóv. 1959, nokkuð stytt. Sumstaðar erlendis er sá háttur á hafður, að í byrj- un skólaársins er haldinn fundur með ícreldrum þeirra barna, sem eru að byrja skólagöngu. Þar er leitazt við að skýra við- horf skólans, hvað eigi að kenna, kennsluaðferðir og ýmsar kröfur, sem skólinn gerir til nemendanna. Er þetta gert til að reyna að auka samstarf og eyða mis- skilningi milli foreldra og kennara. Ég vona, að þið sjáið ekki eftir að eyða hér með okkur einni kvöld- stund, þó að segja megi, að þessi íundur hefði átt að vera haldinn fyrr, en ýmsar ástæð- ur valda því, að af því hefur ekki orðið fyrr en nú. Á slíkum fundi sem þessum er ekki hægt að ræða málin nema almennt. Um vandamál einstakra bekkja eða ein- stakra barna verður viðkomandi bekkjarkennari að ræða við foreldrana.

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.