Menntamál - 01.08.1960, Page 20

Menntamál - 01.08.1960, Page 20
114 MENNTAMÁL Skýrsla til Menntamálaráðuneytis um störf skólamálanefndar. III. Um vienntaskóla, kennaramenntun o. fl. A. Samþykktir Skólamálanefndar um menntaskóla, kenn- aramenntun o. fl. 1. Nefndin telur nauðsyn bera til að auka fjölbreytni í námi til stúdentsprófs. Bendir hún á eftirfarandi leiðir til þess að ná því marki: a) Aukið valfrelsi milli námsgreina að óbreyttri eða lítt breyttri þeirri deildaskiptingu, sem nú er. b) Skiptingu í fleiri deildir, sbr. samþykkt Félags menntaskólakennara frá vorinu 1958. c) Að deildaskipting verði lögð niður, en í þess stað tek- ið upp valfrelsi milli námsgreinasamstæðna í 4.—6. bekk, sbr. greinargerð. Nefndin telur rétt, að sérstök nefnd, sem í eiga sæti m. a. fulltrúar menntaskólanna og Háskólans, athugi, hvort timabært sé að taka upp þá skipan, sem bent er á í c—lið. Ef niðurstaðan yrði sú, að slíkt sé ekki tímabært, mælir hún með, að fyrri leiðirnar verði farnar. 2. Nefndin leggur til, að einkunn í íþróttum verði ekki talin með á stúdentsprófi. 8. Nefndin leggur til, að þeim nemendum, sem ljúka námi frá Kennaraskóla Islands með 1. einkunn, verði veitt réttindi til að stunda B.A.-nám við Heimspekideild Há- skóla íslands og ljúka þaðan B.A.-prófum. Að loknu B.A.- prófi hafi þeir síðan fullkomin háskólaborgararéttindi.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.